Bæjarráð, fundur 316
12. nóvember 2012, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 123 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. Fundargerð bæjarráðs nr. 316 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013
Mál 1208011 Allur ferill málsins
Tekin lokumræða um fjárhagsáætlunina.Farið yfir starfsáætlun fræðslu- og frístundanefndar. Bæjarráð samþykkir að rammi íþróttamála verði aukinn sem nemur 2.000.000 kr. til hækkunar íþróttastyrkja.Bæjarráð samþykkir jafnframt að rammi til íþróttamála verði aukinn um 325.000 til aukningar opnunartíma sundlaugar á Fáskrúðsfirði. Þá verði opnunartími sundlauga á Eskifirði og Neskaupstað rýmkaður vegna reglugerðarbreytingar en sú breyting rúmast innan fjárhagsáætlunar 2013. Breyting á opnunartíma sundlauga miðast við 1. janúar 2013.Þá samþykkir bæjarráð að skoða forsendur endurfjármögnunar á leigusamningum Fjarðabyggðar. Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætluninni ásamt starfsáætlunum í síðari umræða í bæjarstjórn 15. nóvember n.k. og vísað til kynningar í fræðslu- og frístundanefnd.
-
2. Málefni Slökkviliðs Fjarðabyggðar
Mál 1102004 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri og slökkviliðsstjóri.Umræður um drög að samning Fjarðabyggðar og Alcoa Fjaraáls um slökkvilið Fjarðabyggðar.Bæjarráð felur mannvirkjastjóra og slökkviliðsstjóra að vinna áfram að samningi og leggja fyrir bæjarráð þegar hann er tilbúinn.
-
3. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Bæjarráð
Mál 1208101 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað bæjarritara (merkt trúnaðarmál) um stöðu könnunarviðræðna við Nýherja um miðlæga þjónustu.Bæjarráð felur bæjarritara að vinna áfram að málinu.
-
4. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Barnaverndarnefnd
Mál 1208104 Allur ferill málsins
Umræður um barnaverndarmál og skipulag á starfsemi.Bæjarráð samþykkir óbreytt fyrirkomulag og felur bæjarstjóra að útfæra það nánar með félagsmálastjóra.
-
5. Þriggja ára fjárhagsáætlun 2014 - 2016
Mál 1210138 Allur ferill málsins
Fram lögð tillaga um breytingu á liðnum menningarmál samkvæmt minnisblað bæjarstjóra þar sem útgjöld hækka frá árinu 2014.Bæjarráð samþykkir að vísa þriggja ára fjárhagsáætlun með breytingum til síðari umræðu í bæjarstjórn 15. nóvember n.k..
-
6. Tíu ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013 til 2023
Mál 1210139 Allur ferill málsins
Lokaumfjöllun um tíu ára fjárhagsáætlun.Bæjarráð vísar tíu ára fjárhagsáætlun til síðari umræðu í bæjarstjórn 15. nóvember n.k..
-
7. Öldungamót í blak í Fjarðabyggð
Mál 1211019 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf stjórnar blakdeildar Þróttar þar sem óskað er viðræðna um lausnir til að öldungamót í Fjarðabyggðahöllinni.Bæjarráð felur mannvirkjastjóra, fræðslustjóra og forstöðumanni íþrótta- og tómstundamála að ræða við fulltrúa blakdeildarinnar og skila greinargerð til bæjarráðs. Málið jafnframt sent fræðslu- og frístundanefnd til upplýsinga.
-
8. 750 Fjarðabyggð, snjóflóðavarnir Fáskrúðsfirði
Mál 1101234 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að framkvæmd við ofanflóðavarnir á Fáskrúðsfirði fari í útboð og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
9. Beiðni um að sveitarfélögin gerist meðumsækjendur - Franski spítalinn
Mál 1211023 Allur ferill málsins
Fram lögð beiðni frá Minjavernd um að Fjarðabyggð verði meðumsækjandi að IPA verkefni vegna Franska spítalans á Fáskrúðsfirði.Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu enda felist ekki í því beinn kostnaður. Umsjón með verkefninu falin forstöðumanni safnastofnunar.
-
10. Drög að samstarfsyfirlýsingu og stutt lýsing á RICE verkefninu
Mál 1211051 Allur ferill málsins
Fram lögð drög að verkefni til stuðnings samfélögum/byggðakjörnum þar sem viðvarandi fækkun íbúa hefur verið um árabil.Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu enda felist ekki í því beinn kostnaður. Umsjón verkefnis verði á höndum stjórnsýslu- og þjónustusviðs.
-
11. IPA verkefni með áherslu á innflytjendur
Mál 1210193 Allur ferill málsins
Fram lögð drög að verkefni til eflingar þjónustu við innflytjendur í Fjarðabyggð.Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu enda felist ekki í því beinn kostnaður. Umsjón verkefnis verði á höndum fjölskyldusviðs.
-
12. Miðstöð innanlandsflugs til umsagnar,120.mál(hlutverk Reykjavíkurflugvallar)
Mál 1211050 Allur ferill málsins
Fram lagt til kynningar frumvarp til laga um að miðstöð innanlandsflugs á Íslandi verði staðsett nærri nauðsynlegri þjónustu í Reykjavík.Bæjarráð felur forstöðumanni stjórnsýslu að móta umsögn um frumvarpið í samráði við bæjarstjóra. Tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
-
13. Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð
Mál 1106064 Allur ferill málsins
Fram lagt yfirlit um íbúaþróun í Fjarðabyggð síðastliðna mánuði.
-
14. Stofnfundur Samtaka orkusveitarfélaga
Mál 1111090 Allur ferill málsins
Fram lögð fundargerð aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn var 28. september 2012
-
15. Stofnun samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Mál 1209087 Allur ferill málsins
Fram lagðar fundargerðir frá stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga.
-
16. Styrkbeiðni 2013 frá Golfklúbbi Fjarðabyggðar
Mál 1211049 Allur ferill málsins
Fram lögð beiðni Golfklúbbs Fjarðabyggðar um uppbyggingarstyrki vegna uppbyggingar á aðstöðu félagsins á golfvellinum á Reyðarfirði.Bæjarráð mun ekki veita uppbyggingarstyrk til golfvallar á Reyðarfirði en erindið verður tekið upp við afgreiðslu styrkja til íþróttafélag. Vísað til kynningar í fræðslu- og frístundanefnd.
-
17. Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði
Mál 1201079 Allur ferill málsins
Fram lögð umsögn mannvirkjastjóra og hafnarstjóra vegna málsins. Umsögnin hefur fengið umfjöllun í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn.Bæjarráð samþykkir umsögnina og felur bæjarstjóra að undirrita hana.
-
18. Umsókn um styrk vegna starfsemi Landsbyggðin lifi.
Mál 1211036 Allur ferill málsins
Fram lögð styrkbeiðni frá Landsbyggðin lifi vegna reksturs á starfsemi samtakanna.Bæjarráð getur ekki veitt styrk til samtakanna þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsáætlunar.
-
19. Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2012-2014
Mál 1207043 Allur ferill málsins
Fram lagt yfirlit yfir stöðu framkvæmdaáætlunar í málefnum fatlaðra.Bæjarráð vísar framkvæmdaáætlun til umfjöllunar félagsmálanefndar, eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og fræðslu- og frístundanefndar og til skoðunar hjá hlutaðeigandi sviðsstjórum og bæjarstjóra.
-
20. Innflytjendamál-bréf til þjóðskrár
Mál 1211053 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf til Þjóðskrár þar sem innflytjendateymið á Austurlandi gerir athugasemdir við drátt á afgreiðslu umsókna um kennitölur einstaklinga.Bæjarráð tekur undir athugasemdir innflytjendateymisins og hvetur Þjóðskrá til að flýta afgreiðslu umsókna.
-
21. Beiðni um opnun skíðasvæðis í Oddskarði
Mál 1211066 Allur ferill málsins
Fram lögð beiðni skíðafélagsins um að skíðasvæðið í Oddsskarði verði opnað sem fyrst og verði opið fram í miðjan desember.
Bréfinu vísað til fræðslustjóra til skoðunar og kynningar í fræðslu- og frístundanefnd.
-
22. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 50
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 50 lögð fram til kynningar.
-
23. Hafnarstjórn - 106
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 105 lögð fram til kynningar.