Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 106

6. nóvember 2012, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 316 liður 23

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 105 lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 123 liður 4

    Til máls tóku:  Guðmundur Þorgrímsson, Páll Björgvin Guðmundsson.Fundargerð hafnarstjórnar nr. 106 frá 6. nóvember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa

    Mál 1005131 Allur ferill málsins

    Gerð grein fyrir gangi mála varðandi markaðssetningu Fjarðabyggðarhafna fyrir skemmtiferðaskip. Fyrir fundinum lá skýrsla frá markaðsvinnu framkvæmdastjóra hafnanna og markaðsráðgjafa. Björn Ingi mætti á fundinn. Kynnt.

  2. 2. Umsögn vegna frumvarps til laga um breytingu á hafnalögum nr. 61/2003

    Mál 1210164 Allur ferill málsins

    Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 22. október 2012 þar sem leitað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum nr. 61/2003. Hafnarstjórn sammála um að senda ekki umsögn en frumvarpið er lagt fram eins og það var kynnt á Hafnasambandsþingi í lok september.

  3. 3. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2012

    Mál 1202146 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 351 frá 15. október 2012. Til kynningar.

  4. 4. Fundagerðir CI á árinu 2012

    Mál 1204109 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Cruise Iceland frá 25. október 2012 kynnt.

  5. 5. Erindi frá innanríkisráðuneyti - ósk um upplýsingar fyrir AMATII verkefnið

    Mál 1210165 Allur ferill málsins

    Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 22. október 2012 þar sem óskað er eftir upplýsingum fyrir innanríkisráðuneytið um hafnir Fjarðabyggðar. Kynnt.

  6. 6. Fiskmarkaður Austurlands - 8. mánaðauppgjör

    Mál 1211016 Allur ferill málsins

    Átta mánaða uppgjör Fiskmarkaðar Austurlands. Kynnt.

  7. 7. Styrkbeiðni um enduruppbyggingu bryggju við sjóhús að strandgötu 19,740 Neskaupstað

    Mál 1210174 Allur ferill málsins

    Erindi dags. 24. október 2012 þar sem óskað er eftir styrk til endurbóta á gamalli bryggju að Strandgötu 19 Norðfirði. Hafnarstjórn samþykkir greiðslu kostnaðar sem nemur helmingi af heildarkostnaði verks skv. framlögðum reikningum, styrkur getur þó aldrei numið hærri fjárhæð en 500.000 kr.

  8. 8. Geymsluskýli fyrir bulkvöru á Mjóeyararhöfn

    Mál 1210173 Allur ferill málsins

    Erindi er varðar byggingu geymsluskýlis á Mjóeyrarhöfn fyrir framleiðsluvörur Alcoa. Kynnt og tekið fyrir síðar.

  9. 9. Skipulag smábátahafnar á Fáskrúðsfirði

    Mál 1210116 Allur ferill málsins

    Erindi frá Björgunarsveitinni Geisla dags. 11. október 2012. Um að við hönnun og skipulag smábátahafnarinnar á Fáskrúðsfirði verði gert ráð fyrir nýrri björgunarmiðstöð sem risið geti í framtíðinni.  Framkvæmdastjóra falið að ræða við formann Geisla.

  10. 10. Smábátahöfn Fáskrúðsfirði - Umhverfisfrágangur

    Mál 1211018 Allur ferill málsins

    Fyrir fundinum liggja frumdrög að umhverfisfrágangi við smábátahöfnina á Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn fór yfir drögin og gerði athugasemdir.

  11. 11. Smábátahöfn Stöðvarfirði - Umhverfisfrágangur

    Mál 1211017 Allur ferill málsins

    Fyrir fundinum liggja frumdrög að umhverfisfrágangi við höfnina á Stöðvarfirði unnar af Landmótun sf. Hafnarstjórn fór yfir drögin og gerði athugsemdir.