Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 107

4. desember 2012, kl. 16:30 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Guðmundur Þorgrímsson, formaður
  • Sævar Guðjónsson, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Gísli Benediktsson, aðalmaður
  • Óskar Þór Hallgrímsson, aðalmaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 319 liður 21

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 107 frá 4. desember lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 125 liður 3

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 107 frá 4. desember 2012 samþykkt með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2012

    Mál 1202146 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar hafnasambands Íslands nr. 352 frá 19. nóvember 2012. Kynnt.

  2. 2. Ný reglugerð um viðbrögð við bráðamengun hafs og stranda

    Mál 1211165 Allur ferill málsins

    Erindi frá Hafnasambandi Íslands þar sem kynnt er ný reglugerð um viðbrögð við bráðamengun hafs og stranda. Til kynningar.

  3. 3. Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði

    Mál 1201079 Allur ferill málsins

    Erindi varðandi umsögn vegna 4000 tonna laxeldis í sjókvíum í Fáskrúðsfirði visað frá bæjarráði til umsagnar í hafnarstjórn. Hafnarstjórn staðfesti umsögn framkvæmdastjóra sem veitt var til bæjarráðs.

  4. 4. Brú yfir Lambeyrará

    Mál 1208086 Allur ferill málsins

    Kynnt niðurstaða boðs til Verkmenntaskóla Austurlands um að smíða brúna, en að mati deildarstjóra tréiðnadeildar er verkið of tímafrekt með öðrum þáttum námsins, en þakkar jafnframt gott boð. Málinu frestað.

  5. 5. Fyrirspurn um innheimtu vörugjalda

    Mál 1202114 Allur ferill málsins

    Framhald máls vegna vörugjalda við umskipun úr Ölmu á Fáskrúðsfirði síðasta haust. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra á grunni nýrra upplýsinga að ganga frá málinu.

  6. 6. Ferðaleiðir stiklur og námskeið

    Mál 1211152 Allur ferill málsins

    Kynnt hugmynd að námskeiði fyrir leiðsögumenn og áætlun um kostnað.

    Einnig kynnt drög að stiklum til leiðsagnar í Fjarðabyggð.

    Hafnarstjórn leist vel á drög að stiklum og samþykkti að hrinda námskeiði af stað í upphafi árs 2013.

  7. 7. Hafnarkerfi í Navision í stað Lóðsins

    Mál 1211167 Allur ferill málsins

    Í skoðun hefur verið hvaða skráningarkerfi geti leyst gamla Lóðsinn af hólmi. Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir málinu. Hafnarstjórn heimilar framkvæmdastjóra að ganga frá málinu í samræmi við umræðu á fundinum.

  8. 8. Franski spítalinn - bryggjuaðstaða

    Mál 1105174 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn fór yfir stöðu málsins og frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.

  9. 9. Mjóeyrarhöfn - lestunarskýli við hafnarsvæði

    Mál 1211143 Allur ferill málsins

    Erindi frá Eimskipum varðandi byggingu skemmu við Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn tekur jákvætt í málið og felur framkvæmdastjóra að ganga frá því í samráði við bæjarstjóra.

  10. 10. Smábátahöfn Fáskrúðsfirði - Umhverfisfrágangur

    Mál 1211018 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn fór yfir ný drög að umhverfisfrágangi við smábátahöfnina á Fáskrúðsfirði og líst vel á framkomnar hugmyndir en óskar eftir smávægilegum breytingum.