Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 108

18. desember 2012, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Guðmundur Þorgrímsson, formaður
  • Sævar Guðjónsson, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Gísli Benediktsson, aðalmaður
  • Óskar Þór Hallgrímsson, aðalmaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 321 liður 16

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 108 frá 19. desember lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 126 liður 4

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 19. desember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Löndunarkrani smábáta Norðfirði

    Mál 1210141 Allur ferill málsins

    Fyrir fundinum lá minnisblað framkvæmdastjóra um verð á krönum. Hafnarstjórn samþykkti að kaupa krana frá Framtak Blossa ehf, en um er að ræða samskonar krana og er í notkun við löndun úr smábátum á Stöðvarfirði.

  2. 2. Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa

    Mál 1005131 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn samþykkir fyrirkomulag hafnargjalda vegna komu skemmtiferðaskipa.

  3. 3. Þátttaka í Seatrade Marseille haust 2012 og Miami 2013

    Mál 1206118 Allur ferill málsins

    Skýrsla Björns Inga Knútssoanr frá Seatrade Marseille og ákvörðun um að senda fulltrúa á sýninguna í Miami í mars 2013. Skýrslan kynnt og sammþykkti hafnarstjórn jafnframt að senda fulltrúa á sölusýninguna í Miami.

  4. 4. Þekja frystihúsbryggju Eskifirði

    Mál 1203080 Allur ferill málsins

    Kynnt að útboðsgögn vegna þekju á Eskifirði væru tilbúin. Gert var ráð fyrir að verkið yrði unnið á árinu 2012 og þess vegna ekki gert ráð fyrir því í fjárhagsáælutn 2013. Hafnarstjórn samþykkir að fara í framkvæmdina á árinu 2013 og óskar eftir staðfestingu bæjarstjórnar.

  5. 5. Fjármögnun milli sjóða

    Mál 1212063 Allur ferill málsins

    Fram lagður samningur milli sjóða sveitarfélagsins.

    Hafnarstjórn samþykkir samninginn