Hafnarstjórn, fundur 109
22. janúar 2013, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Guðmundur Þorgrímsson, formaður
- Sævar Guðjónsson, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Gísli Benediktsson, aðalmaður
- Óskar Þór Hallgrímsson, aðalmaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 324 liður 22
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 323 frá 21. janúar lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 127 liður 7
Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Guðmundur Þorgrímsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 109 frá 22. janúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Þjónusta við olíuleit á Drekasvæði - kynningarmál
Mál 1210103 Allur ferill málsins
Fundargerðir verkefnahóps um Drekasvæðið - Vísað til kynningar í hafnarstjórn frá bæjarráði. Farið var yfir stöðu mála í verkefninu.
-
2. Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa
Mál 1005131 Allur ferill málsins
Umfjöllun um stöðu verkefnisins og lögð fram verkáætlun.
-
3. Fundagerðir CI á árinu 2012
Mál 1204109 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland frá 6. desember 2012. Kynnt.
-
4. Brú yfir Lambeyrará
Mál 1208086 Allur ferill málsins
Málinu var frestað á síðasta fundi hafnarstjórnar þann 4. desember sl. Fyrir fundinum lá gróft kostnaðarmat á smíði brúarinnar. Hafnarstjórn samþykkir að þetta verði fyrsta skref í yfirborðsfrágangi bak við grjótvörn á Eskifirði.
-
5. Endurnýjun hafnsögumannsskýrteinis
Mál 1301221 Allur ferill málsins
Erindi frá Óla Hans Gestssyni dags. 17. janúar 2013 þar sem hann óskar eftir umsögn hafnarstjórnar til að geta endurnýjað hafnsögumannskírteinið sitt. Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við að Óli Hans Gestsson fái endurnýjað hafnsögumannsskírteini og felur framkvæmdastjóra að veita umsögn til Siglingastofnunar.
-
6. Franski spítalinn - bryggjuaðstaða
Mál 1105174 Allur ferill málsins
Málinu frestað á síðasta fundi hafnarstjórnar 4. desember sl. Fyrir fundinum lágu drög að samningi um smíði bryggjunar. Hafnarstjórn samþykkir samninginn.
-
7. Ráðstefna á vegum Cruise Europe
Mál 1301002 Allur ferill málsins
Ráðstefna á vegum Cruise Europe haldin í Le Havre dagana 23 til 25 apríl 2013. Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á ráðstefnuna.
-
8. Seatrade Hamborg 24 til 26 september 2013
Mál 1212083 Allur ferill málsins
Erindi frá Cruies Iceland dags. 19. desember 2012. Þar sem óskað er upplýsinga um hverjir muni taka þátt í sýningunni Seatrade Hamborg 24 til 26 september 2013. Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á sölusýninguna.
-
9. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
Mál 1103025 Allur ferill málsins
Erindi frá Skipulagsstofnun dags. 15. janúar 2013 þar sem kynnt er innkomin tilkynning um 10.000 tonna eldi í kvíum í Reyðarfirði og óskað er umsagnar sveitarfélagsins um hvort og þá á hvaða forsendum framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifnum. Umsögn skal berast fyrir 1. febrúar 2013.
Fyrir fundinum lágu drög að umsögn og samþykkir hafnarstjórn drögin fyrir sitt leiti og vísar þeim til bæjarráðs.
-
10. Smábátahöfn Fáskrúðsfirði - Umhverfisfrágangur
Mál 1211018 Allur ferill málsins
Frekari útfærsla á tillögu að yfirborðsfrágangi við smábátahöfnina á Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn samþykkir teikningarnar fyrir sitt leiti og vísar þeim til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og atvinnu- og menninganefnd.
-
11. Smábátahöfn Stöðvarfirði - Umhverfisfrágangur
Mál 1211017 Allur ferill málsins
Áframhaldandi hugmyndavinna við umhverfisfrágang á hafnarsvæðinu Stöðvarfirði. Hafnarstjórn gerði nokkrar athugasemdir við fyrirliggjandi teikningu sem framkvæmdastjóri kemur til skila til hönnuðar.