Hafnarstjórn, fundur 110
14. febrúar 2013, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Guðmundur Þorgrímsson, formaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Gísli Benediktsson, aðalmaður
- Óskar Þór Hallgrímsson, aðalmaður
- Árni Þórhallur Helgason, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 327 liður 27
Fundargerð hafnarstjórar nr. 110 frá 14. febrúar s.l. lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 128 liður 3
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 110 frá 14. febrúar 2013 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Endurnýjun hafnsögumannsskírteinis Hafþórs Eide
Mál 1302002 Allur ferill málsins
Ósk um endurnýjun hafnsögumannsskírteinis fyrir Hafþór Eide Hansson. Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við að Hafþór fái endurnýjað hafnsögumannsskírteini og felur framkvæmdastjóra að veita umsögn til Siglingastofnunar.
-
2. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2013
Mál 1301250 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 353 dags. 18. janúar 2013 ásamt ársreikningi sambandsins fyrir árið 2012 til kynningar.
-
3. Stækkun Norðfjarðarhafnar - fyrirspurn um matskildu
Mál 1301238 Allur ferill málsins
Kynnt erindi Skipulagsstofnunar til Fjarðabyggðar þar sem óskað er umsagnar sveitarfélagsins um hvort stækkun hafnarinnar á Norðfirði og á hvaða forsendum framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum. Kynnt.
-
4. Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa
Mál 1005131 Allur ferill málsins
Kynnt var fundaröð vegna kynningar á skemmtiferðaskipaverkefninu sem haldin var í þéttbýliskjörnum sveitarfélagins síðustu tvær vikur. Formaður og varaformaður sóttu fundina fyrir hönd hafnarstjórnar. Fjallað um móttöku skemmtiferðaskipa og ákvöruðun um niðursetningu stormpolla vegna stærðar skipa. Fyrir fundinum lá minnisblað frá framkvæmdastjóra vegna málsins. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna málið.
-
5. Álagning á gamlar trébryggjur
Mál 1302013 Allur ferill málsins
Svar framkvæmdastjóra við fyrirspurn á síðasta fundi hafnarstjórnar um álagningu fasteignaskatts á gamlar trébryggjur í Fjarðabyggð. Frestað til næsta fundar þar sem fyrirspyrjandi situr ekki fundinn.
-
6. Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta
Mál 1301313 Allur ferill málsins
Minnisblað frá Siglingastofnun dags. 1. febrúar 2013 um bryggju fyrir löndunaraðstöðu smábáta á Norðfirði. Hafnarstjórn lýsir yfir óánægju með seinagang Siglingastofnunar og framkvæmdastjóra með framgang verksins. Hafnarstjórn samþykkir að um verði að ræða harðviðarbryggju og óskar eftir að fá upplýsingar inn á næsta fund hvort hægt er að flýta málinu.
-
7. Smábátahöfn Stöðvarfirði - Umhverfisfrágangur
Mál 1211017 Allur ferill málsins
Fyrir fundinum láu ný drög að umhverfisfrágangi á hafnarsvæðinu á Stöðvarfirði. Hafnarstjórn samþykkir að styðjast við tillögu A en halda Bankastrætinu opnu á meðan ekki er komin sú framtíðarleið sem kemur fram í tillögunni auk nokkurra athugsemda sem verðu komið á framfæri.