Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 111

5. mars 2013, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Guðmundur Þorgrímsson, formaður
  • Sævar Guðjónsson, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Gísli Benediktsson, aðalmaður
  • Óskar Þór Hallgrímsson, aðalmaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 130 liður 4

    Fundargerðir hafnarstjórnar nr. 111 og 112 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 111 frá 5. mars 2013 staðfest með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Þjónusta við olíuleit á Drekasvæði - kynningarmál

    Mál 1210103 Allur ferill málsins

    Á fundi hafnarstjórnar þann 14. febrúar sl. var ákveðið að taka þetta málefni fyrir á næsta fundir hafnarstjórnar. Bæjarstjóri sat þennan lið fundarins og gerði grein fyrir stöðu máls og hvað unnið hefur verið varðandi kynningu sveitarfélagsins. Rætt var um undirbúning að skoðun skipulags vegna framtíðar hafnsækinnar starfsemi. Hafnarstjórn beinir því til bæjarráðs að láta hefja skoðun á aðalskipulagi Fjarðabyggðar vegna hafnsækinnar starfsemi. Bæjarstjóri vék af fundi.

  2. 2. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2013

    Mál 1301250 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Hafnarsambands Íslands nr. 354 dags. 15. febrúar 2013. Kynnt.

  3. 3. Kynnt frumvarp til laga um hafnalög

    Mál 1302176 Allur ferill málsins

    Erindi frá Hafnasambandi Íslands þar sem kynnt er frumvarp til laga um hafnalög og höfnum gefin kostur á að koma með ábendingar til Hafnasambandsins um athugasemdir. Hafnasambandið þarf að skila umsögn fyrir 8. mars nk. en leiðrétting kom frá Alþingi um ranga dagsetningu í erindinu til HÍ. Kynnt.

  4. 4. Smábátahöfn Fáskrúðsfirði - Umhverfisfrágangur

    Mál 1211018 Allur ferill málsins

    Gerð grein fyrir stöðu mála varðandi skipulagsmál og framkvæmdaferli. Fyrir fundinum lá tímaplan vegna framkvæmdarinnar. Framkvæmdastjóri fór yfir málið.

  5. 5. Smábátahöfn Stöðvarfirði - Umhverfisfrágangur

    Mál 1211017 Allur ferill málsins

    Gerð grein fyrir stöðu mála varðandi skipulagsmál og framkvæmdaferli. Fyrir fundinum lá tímaplan vegna framkvæmdarinnar. Framkvæmdastjóri fór yfir málið.

  6. 6. Eskifjörður - Stormpolli

    Mál 1302133 Allur ferill málsins

    Framhald frá síðasta fundi hafnarstjóranr varðandi uppsetningu stormpolla við hafskipabryggjuna á Eskifirði.

  7. 7. Álagning á gamlar trébryggjur

    Mál 1302013 Allur ferill málsins

    Svar við fyrirspurn á fundi hafnarstjórnar í janúar um álagningu fasteignaskatts á gamlar trébryggjur í Fjarðabyggð. Málinu frestar á fundi hafnarstjórnar 14. febrúar vegna fjarveru fyrirspyrjanda. Kynnt.

  8. 8. Flutningur starfsmannaaðstöðu Mjóeyrarhöfn

    Mál 1302160 Allur ferill málsins

    Erindi frá Mannviti fyrir hönd Eimskipa þar sem sótt er um heimild til að flytja starfsmannaaðstöðuna til innan verndarsvæðis Mjóeyrarhafnar. Hafnarstjórn samþykkir flutning starfsmannaaðstöðunnar fyrir sitt leiti.

  9. 9. Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta

    Mál 1301313 Allur ferill málsins

    Upplýsingar varðandi löndunaraðstöðu fyrir smábáta sem óskað var á síðasta fundi hafnarstjórnar. Fyrir fundinum liggur verð í bryggjuefni. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að ganga frá kaupum á efninu.

  10. 10. Starfsmannamál hafnarsjóðs

    Mál 1302153 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að auglýsa eftir starfsmanni og að kostnaðaraukinn verði fjármagnaður innan áætlunar ársins.