Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 327

18. febrúar 2013, kl. 08:30 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 128 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umræðu og afgreiðslu.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 327 frá 18. febrúar 2013 utan liðar 2.3 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjarðabyggðarhöll

    Mál 2008-09-11-1450 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir kosti og galla þess að endurfjármagna leigusamninga um Fjarðabyggðarhöllina.

    Bæjarstjóra og fjármálastjóra falið að vinna áfram að málinu.

  2. 2. Leigusamningur vegna urðunar í landi Þernunes - viðauki

    Mál 1201003 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri.

    Fram lagður viðauki við leigusamning vegna urðunarstaðarins í Þernunesi.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann.

  3. 3. Gjaldskrá Skipulagðra samgangna 2013

    Mál 1209059 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat mannvirkjastjóri.

    Lögð fram tillaga framkvæmdasviðs, dagsett 9. febrúar 2013, að samræmdri gjaldskrá fyrir Skipulagðar samgöngur í Fjarðabyggð og á Austurlandi öllu.

    Bæjarráð felur bæjarritara að meta kostnað við endurgjaldslaus afnot starfsmanna Fjarðabyggðar af skipulögðum samgöngum.

    Bæjarráð samþykkir tillögu framkvæmdasviðs með 2 atkvæðum, Elvar Jónsson er á móti.

    Elvar Jónsson bókar að hann er ekki hlynntur tillögu að gjaldskrá þar sem hann telur að Fjarðabyggð eigi að vera eitt gjaldsvæði.

  4. 4. Ofanflóðavarnir í Fjarðabyggð - næstu skref

    Mál 1302105 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat mannvirkjastjóri.

    Fram lögð drög að bréfi til Ofanflóðasjóðs vegna næstu skrefa í ofanflóðavörnum í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð leggur til við Ofanflóðasjóð að hafin verði vinna við frumathugun ofanflóðavarna í Neskaupstað og hönnun varnarmannvirkja á Eskifirði.

    Bæjarráð samþykkir tillögur að næstu skrefum í ofanflóðavörnum og felur mannvirkjastjóra að senda bréfið til Ofanflóðasjóðs.

  5. 5. Starf mannvirkjastjóra.

    Mál 1302107 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri.

    Fram lagt bréf Jóhanns Eðvalds Benediktssonar þar sem hann tilkynnir uppsögn sína á starfi mannvirkjastjóra.

    Bæjarstjóri mun auglýsa starf mannvirkjastjóra.

    Bæjarráð þakkar Jóhanni fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins og óskar honum velfarnaðar í nýju starfi. Jóhann mun sinna störfum fram til 1. maí.

  6. 6. Reglur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks

    Mál 1203033 Allur ferill málsins

    Fram lagðar reglur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarstjórnar til staðfestingar. Jafnframt er félagsmálanefnd falið að útfæra gjaldskrá fyrir ferðaþjónustuna og leggja fyrir bæjarráð.

  7. 7. Rekstur málaflokka 2013

    Mál 1302118 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat fjármálastjóri.

    Farið yfir rekstur málaflokka janúar til desember 2012.

  8. 8. Endurskoðun á úthlutunarreglum íþróttastyrkja

    Mál 1208066 Allur ferill málsins

    Fram lagðar til staðfestingar reglur fræðslu- og frístundanefndar um úthlutun styrkja til íþróttamála.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti og vísar reglunum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  9. 9. Viðmið fyrir gjaldfrjáls afnot íþróttafélaga af líkamsræktarstöðvum Fjarðabyggðar

    Mál 1301222 Allur ferill málsins

    Lögð fram endurskoðuð viðmið vegna gjaldfrjálsra afnota af íþróttamannvirkjum Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð samþykkir ný viðmið.

  10. 10. Öldungamót í blak í Fjarðabyggð

    Mál 1211019 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri.

    Greinargerð um aðstöðumál í Fjarðabyggð vegna öldungamóts í blaki, rituð af íþrótta- og tómstundafulltrúa í samráði við fræðslustjóra og mannvirkjastjóra.

    Bæjarráð frestar afgreiðslu liðar og óskar eftir greinargerð íþrótta- og tómstundafulltrúa um möguleika þess að auka notkun á Fjarðabyggðarhöllinni.

  11. 11. Bleiksá - árfarvegur

    Mál 1302049 Allur ferill málsins

    Bréf frá Geir Hólm vegna Bleiksár á Eskifirði lagt fram.

    Bæjarráð felur mannvirkjastjóra að svara bréfi Geirs Hólms.

  12. 12. Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði

    Mál 1104080 Allur ferill málsins

    Áframhald frá fundi bæjarráðs 11.febrúar Atvinnu- og menningarnefnd gerir ekki athugasemdir við leigusamning.

    Bæjarráð samþykkir leigusamninginn og samantekin samningsatriði milli Fjarðabyggðar og Minjaverndar og felur bæjarstjóra að ganga frá samningi um afhendingu Franska spítalans.

  13. 13. Fyrirspurn um opinn hugbúnað

    Mál 1302082 Allur ferill málsins

    Fram lagt til kynningar minnisblað bæjarritara um opinn hugbúnað vegna fyrirspurnar Estherar Aspar Gunnarsdóttur á bæjarstjórnarfundi 7.febrúar s.l..

  14. 14. Til umsagnar frumvarp til laga um stjórn fiskveiða, 570. mál.

    Mál 1302098 Allur ferill málsins

    Hafin er vinna við umsögn um frumvarpið.

    Bæjarritara falið að óska eftir fresti á skilum á umsögn til 25. febrúar n.k.

    Bæjarráð vísar dagskrárlið til bæjarstjórnar.

  15. 15. Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2013

    Mál 1302050 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar aðalfundarboð Samtaka atvinnulífsins vegna vatns-, hita- og rafveitna.

  16. 16. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2013

    Mál 1301220 Allur ferill málsins

    Fram lögð beiðni frá Stjórn Náttúrustofu Austurlands um beiðni um að framlag sveitarfélag verði hækkað úr 30%.

    Bæjarráð vísar erindi til fjárhagsáætlunargerðar 2014.

  17. 17. Landsþingsfulltrúar og 26.landsþing 2013

    Mál 1302110 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar dagskrá landsþings sveitarfélaga 15. mars n.k.

    Farið yfir ferðatilhögun.

  18. 18. Niðurstaða forsendunefndar kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga

    Mál 1302095 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar niðurstaða forsendunefndar Sambands sveitarfélaga og viðsemjenda um samningsforsendur og breytingar kjarasamningum.

  19. 19. Úrsögn úr stjórn Starfa

    Mál 1302067 Allur ferill málsins

    Fram lagt bréf Svanbjargar Pálsdóttur þar sem óskar eftir lausn frá setu sem varamaður í stjórn Starfa.

    Bæjarráð samþykkir að varafulltrúi Fjarðabyggðar í stjórn starfa verði Elvar Jónsson.

  20. 20. Stjórnarfundur StarfA 2012

    Mál 1203155 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar fundargerð Starfa frá 26. október 2012.

  21. 21. Stjórnarfundir StarfA 2013

    Mál 1302097 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar fundargerð stjórnar Starfa frá 10. janúar 2013.

  22. 22. Fundargerðir félagsmálanefndar 2013

    Mál 1301074 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 40 frá 11.02. sl. lögð fram til kynningar.

  23. 23. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2013

    Mál 1301075 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 32 frá 12.02. sl. lögð fram til kynningar.

  24. 24. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 56

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 56 frá 12. febrúar lögð fram til kynningar

  25. 25. Fræðslu- og frístundanefnd - 36

    Fundargerðin í heild

    Fram lögð til kyningar fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 36 frá 13. febrúar s.l.

  26. 26. Atvinnu- og menningarnefnd - 41

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 41 frá 14. febrúar lögð fram til kynningar

  27. 27. Hafnarstjórn - 110

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórar nr. 110 frá 14. febrúar s.l. lögð fram til kynningar.