Bæjarráð, fundur 328
25. febrúar 2013, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 129 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs nr. 328 frá 25. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Framtíð gömlu Hulduhlíðar 2013
Mál 1302140 Allur ferill málsins
Framlagt bréf framkvæmdastjóra Hulduhlíðar þar sem spurst er fyrir um framtíð húsnæðis Hulduhlíðar að Bleiksárhlíð 56 á Eskifirði.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu og svara framkvæmdastjóra.
-
2. Til umsagnar frumvarp til laga um stjórn fiskveiða, 570. mál.
Mál 1302098 Allur ferill málsins
Bæjarstjórn vísaði málinu til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs þann 20. febrúar s.l. Framlögð drög að umsögn um frumvarp til laga um breytingu á stjórnun fiskveiða sem unnin er á grundvelli skýrslu KPMG endurskoðunar.
Bæjarráð samþykkir umsögnina og felur bæjarstjóra að senda hana.
Bæjarráð Fjarðabyggðar telur að þær breytingar sem gerðar hafa verið á frumvarpinu breyti ekki meginatriðum þess og mun jafnvel hafa meiri neikvæð áhrif í sveitarfélaginu en hið fyrra. Bæjaráð Fjarðabyggðar stendur því við fyrri umögn sína, mótmælir framlögðu frumvarpi og hvetur stjórnvöld til að hafa víðtækt samráð um framtíðarskipan fiskveiðistjórnunar.
-
3. Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga
Mál 1302129 Allur ferill málsins
Framlagt aðalfundarboð Lánasjóðs sveitarfélaga þann 15. mars 2013 á Grandhótel í Reykjavík.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með fullnaðarumboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum og bæjarritari til vara.
-
4. Umsókn um lán úr Ofanflóðasjóði
Mál 1302139 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf fjármálastjóra þar sem óskað er eftir láni úr Ofanflóðasjóði vegna framkvæmda við ofanflóðavarnir í Neskaupstað.
Lagt fram til kynningar. Fjármálastjóra falið að vinna málið áfram.
-
5. Yfirlýsing og samningur sveitarfélaga á Austurlandi um Almenningssamgöngur - 2013
Mál 1301049 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga dómnefndar að nafn og merki fyrir almenningssamgöngur á Austurlandi.
Lagt fram til kynningar.
-
6. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna, 537 mál
Mál 1302152 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna.
-
7. Óvissa um þjónustu á FSA
Mál 1302120 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Skólaskrifstofu Austurlands þar sem lýst er áhyggjum af stöðu geðlæknis- og sálfræðiþjónustu barna- og unglingadeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri við Skólaskrifstofu.
Bæjarráð tekur undir efni bréfs Skólaskrifstofu Austurlands og lýsir þungum áhyggjum af skerðingu á þjónustu Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri í þessum málaflokki. Jafnframt vísað til fræðslu- og frístundanefndar og félagsmálanefndar.
-
8. Samkomulag um endurnýjaða viðræðuáætlun
Mál 1302128 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar niðurstaða úr viðræðum Samninganefndar sveitarfélaga og Félags Grunnskólakennara um endurnýjaða viðræðuáætlun.
-
9. Námskeið í Brussel um byggðastefnu ESB 20-22.mars: Auglýst eftir umsóknum
Mál 1302122 Allur ferill málsins
Dagana 20-22.mars næstkomandi verður haldið námskeið í Brussel um byggðastefnu ESB
undir yfirskriftinni: Þátttaka sveitarfélaga í byggðastefnu Evrópusambandsins. Markmið ferðarinnar er að kynna byggðastefnu ESB og aðkomu sveitarstjórnarstigsins að henni. Kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum og æðstu embættismenn sveitarfélaga geta sótt um þátttöku.
Framlagt til kynningar.