Bæjarráð, fundur 329
4. mars 2013, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 129 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs nr. 329 frá 13. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjármögnun og lánasamningar
Mál 1205065 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið fundar sátu Hilmar Gunnlaugsson lögmaður frá Sókn ásamt fjármálastjóra.
Framlögð gögn merkt trúnaðarmál.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar þann 7. mars 2013.
-
2. 755 - Beiðni um framlengingu á húsaleigu
Mál 1302151 Allur ferill málsins
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd vísaði til bæjarráðs, erindi frá Rósu Valtingojer verkefnastjóra Sköpunarmiðstöðvarinnar, þar sem fer hún fram á framlengingu á húsaleigusamningi um íbúðarhúsnæði að Leynimel 11, 755 Stöðvarfirði. Rósa óskar eftir að sá samningur verði byggður á sömu kjörum og eldri samningur.
Samkvæmt reglum Fjarðabyggðar um útleiga íbúða til félagasamtaka er endurgjaldslaus leigutími 4 mánuðir.
Bæjarráð felur mannvirkjastjóra að ræða við bréfritara. Jafnframt er mannvirkjastjóra að falið að meta reynslum reglum og koma með tillögur að breytingum á þeim ef þörf þykir.
-
3. Endurgreiðsluhlutfall launagreiðenda á greiddum lífeyri í LSS - 2013
Mál 1302182 Allur ferill málsins
Framlagt bréf stjórnar Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar þar sem lagt er til að endurgreiðsluhlutfall launagreiðenda verði óbreytt frá fyrra ári, þ.e. 66 % fyrir árið 2013.
Bæjarráð samþykkir tillögu stjórnarinnar um að hlutfallið verði 66% árið 2013.
-
4. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna, 537. mál
Mál 1302152 Allur ferill málsins
Drög að umsögn Sambandsins vegna breytinga á lögum um kosningar til sveitarstjórna lögð fram til kynningar.
Bæjarráð lýsir áhyggjum af flóknum reglum um kosningar til sveitarstjórna og felur bæjarritara að koma þeim á framfæri við umsagnaraðila hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
-
5. Skipulagðar samgöngur 2013 afnot starfsmanna
Mál 1209059 Allur ferill málsins
Bæjarráð fól bæjarritara á fundi nr. 327 að meta kostnað við endurgjaldslaus afnot starfsmanna Fjarðabyggðar af skipulögðum samgöngum. Framlagt minnisblað bæjarritara.
Bæjarráð felur bæjarritara að semja reglur um afnot starfsmanna af skipulögðum samgöngum.
-
6. Hvatning um að setja sér fjölskyldustefnu og framkvæmd hennar.
Mál 1302172 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Velferðarvaktarinnar þar sem sveitarfélög eru hvött til að setja sér fjölskyldustefnu og áætlun um framkvæmd hennar.
Vísað til félagsmálanefndar og fræðslu- og frístundanefndar.
-
7. Norðfjarðargöng - undirbúningur 2012, aðalmál
Mál 1207029 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat mannvirkjastjóri.
Lagt fram samkomulag milli Vegagerðar og Fjarðabyggðar vegna mála tengdum nýjum Norðfjarðargöngum.
Bæjarráð samþykkir samkomulagið og felur bæjarstjóra undirritun þess.
-
8. Til umsagnar frumvarp til laga um útlendinga (heildarlög, EES-reglur), 541. mál.
Mál 1302170 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar frumvarp til laga um útlendinga 541. mál.
Vísað til félagsmálanefndar.
-
9. Atvinnu- og menningarnefnd - 42
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar frá 28. febrúar lögð fram til kynningar.
-
10. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 57
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 25. febrúar lögð fram til kynningar.