Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 331

25. mars 2013, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 131 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Guðmundur Þorgrímsson.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 331 frá 25. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2012

    Mál 1303079 Allur ferill málsins

    Trúnaðarmál.

    Þennan dagskrárlið sátu fjármálastjóri og endurskoðandi sveitarfélagsins. Kynnt drög að ársreikningi ásamt endurskoðunarskýrslu.

    Bæjarráð vísar ársreikningi fyrir Fjarðabyggð og stofnanir til fyrri umræðu í bæjarstjórn 4. apríl nk. Ársreikningur verður undirritaður á fundi bæjarráðs fimmtudaginn 4. apríl fyrir bæjarstjórnarfund.

  2. 2. Starf mannvirkjastjóra

    Mál 1302107 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat Tómas Oddur Hrafnsson frá Capacent ráðningum en hann var í símasambandi. Bæjarstjóri lagði fram greinargerð og tillögu vegna ráðningar í starf mannvirkjastjóra. Bæjarráð samþykkir að ráða Guðmund Elíasson sem mannvirkjastjóra sveitarfélagsins og felur bæjarstjóra að ganga frá ráðningu.

  3. 3. NORA verkefnaumsókn - Communities for change

    Mál 1201020 Allur ferill málsins

    Framlagt boð á lokaráðstefnu vegna verkefnisins Communities for Changes í Molde (Aukra) í Noregi 10. - 12. júní nk.

    Bæjarráð samþykkir að fulltrúar Fjarðabyggðar verði bæjarritari og forseti bæjarstjórnar.

  4. 4. Vegahald í Mjóafirði.

    Mál 1301261 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar svar Vegagerðarinnar við bréfi bæjarstjóra vegna vegahalds í Mjóafirði.

    Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og sent til upplýsinga til staðarhaldara Mjóafjarðar.

  5. 5. Stjórnarfundir Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 2012

    Mál 1204010 Allur ferill málsins

    Framlagðar fundargerðir stjórnar Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar nr. 48 frá 22. nóvember og nr. 49. frá 20. febrúar sl.

    Áformuð er kynning fyrir bæjarráð og varamenn bæjarráðs 15. apríl nk. um sameiningu Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar við Lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga.

  6. 6. Stjórnarfundur Skólaskrifstofu Austurlands 2013

    Mál 1303098 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Skólaskrifstofu Austurlands frá 12. mars ásamt ársreikningi Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

  7. 7. Atvinnu- og menningarnefnd - 43

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 43 frá 19. mars lögð fram til kynningar.

  8. 8. Hafnarstjórn - 113

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 113 frá 19. mars s.l. lögð fram til kynningar.