Starf mannvirkjastjóra
Mál 1302107 Fyrst á dagskrá 18. febrúar 2013, síðast 4. apríl 2013. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2013
Bæjarráð, fundur 327 liður 5
Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri.
Fram lagt bréf Jóhanns Eðvalds Benediktssonar þar sem hann tilkynnir uppsögn sína á starfi mannvirkjastjóra.
Bæjarstjóri mun auglýsa starf mannvirkjastjóra.
Bæjarráð þakkar Jóhanni fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins og óskar honum velfarnaðar í nýju starfi. Jóhann mun sinna störfum fram til 1. maí.
-
Bæjarstjórn, fundur 128 liður 2.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 327“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 331 liður 2
Þennan dagskrárlið fundar sat Tómas Oddur Hrafnsson frá Capacent ráðningum en hann var í símasambandi. Bæjarstjóri lagði fram greinargerð og tillögu vegna ráðningar í starf mannvirkjastjóra. Bæjarráð samþykkir að ráða Guðmund Elíasson sem mannvirkjastjóra sveitarfélagsins og felur bæjarstjóra að ganga frá ráðningu.
-
Bæjarstjórn, fundur 131 liður 2.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 331“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.