Bæjarstjórn, fundur 131
4. apríl 2013, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Guðmundur Þorgrímsson, aðalmaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
- Óskar Þór Hallgrímsson, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Dagskrá
-
1. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2012
Mál 1303079 Allur ferill málsins
Fyrri umræða um ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2012.
Þennan dagskrárlið fundar sátu jafnframt fjármálastjóri og endurskoðandi sveitarfélagsins.
Bæjarstjóri fylgdi ársreikningi úr hlaði með greinargerð sinni.
Til máls tóku: Valdimar O Hermannsson, Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa ársreikningi Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2012 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
-
2. Bæjarráð - 331
Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslu.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Guðmundur Þorgrímsson.
Fundargerð bæjarráðs nr. 331 frá 25. mars staðfest með 9 atkvæðum.
- 2.1 Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 20121303079
- 2.2 Starf mannvirkjastjóra1302107
- 2.3 NORA verkefnaumsókn - Communities for change1201020
- 2.4 Vegahald í Mjóafirði.1301261
- 2.5 Stjórnarfundir Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 20121204010
- 2.6 Stjórnarfundur Skólaskrifstofu Austurlands 20131303098
- 2.7 Atvinnu- og menningarnefnd - 431303009F
- 2.8 Hafnarstjórn - 1131303010F
-
3. Bæjarráð - 332
Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslu.
Fundargerð bæjarráðs nr. 332 frá 2. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
- 3.1 Arctic East ráðstefna1303123
- 3.2 Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 21303130
- 3.3 Mat á leigusamningum við Reiti II1302116
- 3.4 Rekstur Egilsbúðar1012090
- 3.5 Samtök sjávarútvegssveitarfélaga fundagerðir 2013 og ársreikningur1301332
- 3.6 Arðgreiðsla Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.vegna 20131303135
- 3.7 Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga1302129
- 3.8 Beiðni um umsjón með rekstri Safnahússins í Neskaupstað1302083
- 3.9 Árskýrsla 2012 og Starfsáætlun 20131303139
- 3.10 Málefni Heilbrigðisstofnunar Austurlands í Fjarðabyggð1303138
- 3.11 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 591303012F
- 3.12 Fundargerðir barnaverndarnefndar 20131301075
-
4. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 59
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson, Sævar Guðjónsson, Guðmundur Þorgrímsson.
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 59 frá 25. mars staðfest með 9 atkvæðum.
- 4.1 Ósk um eyðingu refa í Fólkvangi Neskaupstaðar
- 4.2 Smábátahöfn Stöðvarfirði - Umhverfisfrágangur
- 4.3 755 - Br. á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna hafnarframkvæmda á Stöðvarfirði
- 4.4 755 - Deiliskipulag hafnarsvæðis á Stöðvarfirði
- 4.5 730 - Deiliskipulag, Skotíþróttafélagið Dreki.
- 4.6 740 Deiliskipulagið Hof II, Norðfirði
- 4.7 Stafrænar landupplýsingar Landmælinga Íslands verða gjaldfrjálsar
- 4.8 Almannavarnarnefnd - fundur 20.nóvember 2012
- 4.9 Ofanflóðavarnir í Fjarðabyggð - næstu skref
- 4.10 Rekstur Egilsbúðar
- 4.11 Frumvarp til laga um vatnalög og rannsóknir á auðlindum í jörðu (samræming reglna um vatnsréttindi), 634. mál.
-
5. Atvinnu- og menningarnefnd - 43
Til máls tók Ásta Kristín Sigurjónsdóttir.
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 43 frá 19. mars staðfest með 9 atkvæðum.
-
6. Hafnarstjórn - 113
Enginn tók til máls
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 113 frá 19. mars staðfest með 9 atkvæðum.
- 6.1 Fundargerðir CI á árinu 20131303014
- 6.2 Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta1301313
- 6.3 Umsögn um lýsingu vegna breytingu aðalskipulags á Stöðvarfirði1303084
- 6.4 Smábátahöfn Stöðvarfirði - Umhverfisfrágangur1211017
- 6.5 Beiðni um umsjón með rekstri Safnahússins í Neskaupstað1302083
-
7. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2013
Mál 1301075 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 33 frá 26. mars.
Enginn tók til máls.
Fundargerð barnaverndarnefndar staðfest með 9 atkvæðum.
-
8. Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 2
Mál 1303130 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fylgdi viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2013 úr hlaði.
Viðaukinn er vegna 110 milljóna kr. láns frá Ofanflóðasjóði vegna framkvæmda við ofanflóðavarnir í Fjarðabyggð.
Lántökur Eignasjóðs hækka um 110 milljónir kr. en engin lántaka er á fjárhagsáætlun ársins 2013. Fjármagnskostnaður hækkar um 440.000 kr. Lántaka hækkar handbært fé sjóðsins og samstæðureikning um 109.560.000 kr. og mun viðskiptastaða Eignasjóðs hækka samsvarandi.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann með 9 atkvæðum.
-
9. 755 - Br. á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna hafnarframkvæmda á Stöðvarfirði
Mál 1302123 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi aðalskipulagsbreytingu úr hlaði.
Framlagður uppdráttur dags. 13. mars 2013, unninn af Alta ehf vegna breytinga á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, þéttbýlisuppdrætti fyrir Stöðvarfjörð. Breytingin er til komin vegna fyrirhugaðrar stækkunar iðnaðar og hafnarsvæðis H1/I2 inn á reit O2, opið svæði til sérstakra nota.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að breytingar á aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007 til 2027, þéttbýlisuppdrætti fyrir Stöðvarfjörð verði auglýstar.
-
10. 740 Deiliskipulagið Hof II, Norðfirði
Mál 1207032 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði.
Framlagður endurbættur deiliskipulagsuppdráttur Hofs II vegna athugasemda Skipulagsstofnunar en á honum hafa verið gerðar lítilsháttar breytingar.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum endurbætt deiliskipulag Hofs II, skipulagsuppdrátt með greinargerð dags. 14 mars 2013 þar sem fram kemur að skipulagið er í samræmi við Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.