Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2013

Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 2

Mál 1303130 Fyrst á dagskrá 2. apríl 2013, síðast 4. apríl 2013. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2013

    Bæjarráð, fundur 332 liður 2

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Frá fundi bæjarráðs sem samþykkti 25.febrúar að sækja um lán úr Ofanflóðasjóði vegna framkvæmda við ofanflóðavarnir á árunum 2011 og 2012. Ofanflóðasjóður hefur samþykkt lánveitingu að upphæð 110 millj. króna. Lántakan er ekki í samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2013. Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 131 liður 8

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2013 úr hlaði.

    Viðaukinn er vegna 110 milljóna kr. láns frá Ofanflóðasjóði vegna framkvæmda við ofanflóðavarnir í Fjarðabyggð.

    Lántökur Eignasjóðs hækka um 110 milljónir kr. en engin lántaka er á fjárhagsáætlun ársins 2013. Fjármagnskostnaður hækkar um 440.000 kr. Lántaka hækkar handbært fé sjóðsins og samstæðureikning um 109.560.000 kr. og mun viðskiptastaða Eignasjóðs hækka samsvarandi.

    Bæjarstjórn samþykkir viðaukann með 9 atkvæðum.

  3. Bæjarstjórn, fundur 131 liður 3.2

    Fundargerðin „Bæjarráð - 332“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is