Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 332

2. apríl 2013, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 131 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 332 frá 2. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Arctic East ráðstefna

    Mál 1303123 Allur ferill málsins

    Fram lögð beiðni um styrk vegna ráðstefnu sérnámslækna í heimilislækningum sem haldin verður í Fjarðabyggð 11. til 14. apríl nk. Bæjarráð samþykkir að styrkja ráðstefnuna um allt að 100.000 kr. Tekið af liðnum óráðstafað 21-69.

  2. 2. Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 2

    Mál 1303130 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Frá fundi bæjarráðs sem samþykkti 25.febrúar að sækja um lán úr Ofanflóðasjóði vegna framkvæmda við ofanflóðavarnir á árunum 2011 og 2012. Ofanflóðasjóður hefur samþykkt lánveitingu að upphæð 110 millj. króna. Lántakan er ekki í samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2013. Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  3. 3. Mat á leigusamningum við Reiti II

    Mál 1302116 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Farið yfir málefni Reita hf. og lögð fram gögn merkt trúnaðarmál.

    Bæjarstjóra og fjármálastjóra falið að vinna áfram að málinu á grundvelli minnisblaðs.

  4. 4. Rekstur Egilsbúðar

    Mál 1012090 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar endurnýjun á samningi um rekstur Egilsbúðar til bæjarráðs til umræðu og afgreiðslu.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að samningnum.

  5. 5. Samtök sjávarútvegssveitarfélaga fundagerðir 2013 og ársreikningur

    Mál 1301332 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð 5. stjórnarfundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga.

  6. 6. Arðgreiðsla Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.vegna 2013

    Mál 1303135 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. þar sem tilkynnt er um arðgreiðslu vegna ársins 2012 að fjárhæð 12.219.600 kr.

  7. 7. Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga

    Mál 1302129 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar gögn frá aðalfundi Lánasjóðs sveitarfélaga, ársskýrsla og ársreikningur 2012.

  8. 8. Beiðni um umsjón með rekstri Safnahússins í Neskaupstað

    Mál 1302083 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sátu formenn atvinnu- og menningarnefndar og hafnarstjórnar til að fjalla um beiðni Menningarfélagsins um afnot af Safnahúsinu í Neskaupstað.

    Vísað til frekari umræðu í atvinnu- og menningarnefnd.

  9. 9. Árskýrsla 2012 og Starfsáætlun 2013

    Mál 1303139 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar starfsáætlun Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna ársins 2013 og ársskýrsla 2012.

  10. 10. Málefni Heilbrigðisstofnunar Austurlands í Fjarðabyggð

    Mál 1303138 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sátu fjórir fulltrúar Heilbrigðisstofnunar Austurlands vegna málefna stofnunarinnar, Stefán Þórarinsson, Emil Sigurjónsson, Þórhallur Harðarson og Nína Hrönn Gunnarsdóttir.

  11. 11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 59

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 59 frá 25. mars lögð fram til kynningar.

    1. 11.1 Ósk um eyðingu refa í Fólkvangi Neskaupstaðar
  12. 12. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2013

    Mál 1301075 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 33. frá 26. mars lögð fram til kynningar.