Hafnarstjórn, fundur 113
19. mars 2013, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Guðmundur Þorgrímsson, formaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Gísli Benediktsson, aðalmaður
- Óskar Þór Hallgrímsson, aðalmaður
- Árni Þórhallur Helgason, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 331 liður 8
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 113 frá 19. mars s.l. lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 131 liður 6
Enginn tók til máls
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 113 frá 19. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundargerðir CI á árinu 2013
Mál 1303014 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland dags. 21. febrúar 2013. Þennan lið fundarins sat Björn Ingi Knútsson og gerði grein fyrir ferð sinni á sölusýninguna í Miami nú í mars. Kynnt.
-
2. Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta
Mál 1301313 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir verðkönnun vegna kaupa á efni í löndunarbryggju. Hafnarstjórn samþykkti að ganga til samninga við lægstbjóðanda. Óskar yfirgaf fundinn í lok þessa liðar.
-
3. Umsögn um lýsingu vegna breytingu aðalskipulags á Stöðvarfirði
Mál 1303084 Allur ferill málsins
Erindi frá framkvæmdasviði Fjarðabyggðar þar sem óskað er eftir umsögn hafnarstjórnar Fjarðabyggðar vegna skipulagslýsingar vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalskipulagi Stöðvarfjarðar. Umsögn þarf að skila fyrir 22. mars 2013. Hafnarstjórn samþykkir lýsinguna fyrir sitt leiti.
-
4. Smábátahöfn Stöðvarfirði - Umhverfisfrágangur
Mál 1211017 Allur ferill málsins
Fyrir fundinum lágu ný drög að umhvefisfrágangi á hafnarsvæðinu á Stöðvarfirði. Hafnarstjórn gerði tillögu að nokkrum breytingum og vísar tillögunni til umsagnar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd og kynningar í atvinnu- og menninganefnd.
-
5. Beiðni um umsjón með rekstri Safnahússins í Neskaupstað
Mál 1302083 Allur ferill málsins
Umfjöllun um Safnahúsið á Norðfirði og hugmyndir um rekstur í því. Atvinnu- og menninganefnd vísaði málinu til kynningar í hafnarstjórn. Bæjarstjóri mætti á fundinn og fór yfir málið. Hafnarstjórn fer fram á að fram fari vönduð og fagleg umræða og rökstuðningur fyrir því að taka eigi inn aðra starfsemí en safnastarfsemi í Safnahúsið og jafnframt óskar hafnarstjórn eftir samstarfi um málið.