Hafnarstjórn, fundur 114
9. apríl 2013, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Guðmundur Þorgrímsson, formaður
- Sævar Guðjónsson, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Gísli Benediktsson, aðalmaður
- Óskar Þór Hallgrímsson, aðalmaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 335 liður 15
Fundargerð hafnarstjórnar frá 9. apríl sl. lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 133 liður 7
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 9. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2013
Mál 1301250 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnarsambands Íslands nr. 355 dags. 14. mars 2013. Til kynningar
-
2. Ráðstefnan "The North Atlantic Cruise Symposium 2013" haldinn 9 og 10 maí 2013.
Mál 1303028 Allur ferill málsins
Ráðstefna á vegum Reykjavíkurhafnar sem ber heitið "The North Atlantic Cruise Symposium 2013"
Haldin í Reykjavík dagana 9 og 10 maí nk. Framkvæmdastjóra falið að sitja ráðstefnuna og aðalfund Cruise Iceland.
-
3. Ferðaleiðir stiklur og námskeið
Mál 1211152 Allur ferill málsins
Kynnt niðurstaða um útkomu námskeiðs fyrir leiðsögumenn sem Austurbrú hélt nú í febrúar og mars.
Kynnt.
-
4. Auglýst starf skipstjóra
Mál 1303036 Allur ferill málsins
Umsókn um starf skipstjóra á dráttarbátinn Vött. Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir málinu en tvær umsóknir bárust í starfið. Framkvæmdastjóra falið að ganga frá ráðningu í starfið.
-
5. Gjaldskrármál
Mál 1304027 Allur ferill málsins
Umræður um gjaldskrármál. Breytingar á gjaldskrá varðandi vörugjöld af innanlandsflutningum samþykktar.
-
6. Hafnarmál á Norðfirði
Mál 1111028 Allur ferill málsins
Umfjöllun um stækkun Norðfjarðarhafnar, en fyrirhugað er að fyrsti hluti verði boðinn út næstu helgi. Einnig greint frá kynningarfundi á Norðfirði sem haldinn verður miðvikudaginn 10. apríl nk. þar sem fari verður yfir áhrif framkvæmdanna á umferð báta og skipa um höfnina. Hafnarstjórn samþykkir fyrirliggjandi áætlun.
-
7. Umsókn um uppsetningu á olíutanka og afgreisðlubúnaði í Norðfjarðarhöfn.
Mál 1202066 Allur ferill málsins
Rætt um olíuafgreiðslu fyrir smábáta á Norðfirði, en Olís mun verða með afgreiðslu fyrir smábáta á sama stað og N1 er í dag. Kynnt.
-
8. Þekja frystihúsbryggju Eskifirði
Mál 1203080 Allur ferill málsins
Fundargerð dags. 4. apríl 2013 frá opnun tilboða í framkvæmdir við þekju á Eskifirði. Hafnarstjórn leggur til að gengið verði til samninga við lægst bjóðanda að uppfylltum skilyrðum útboðsins.