Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 335

15. apríl 2013, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 133 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 15. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2012

    Mál 1303079 Allur ferill málsins

    Umræða tekin um ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana 2012.

    Fjármálastjóri var í símasambandi við fundinn og fór hann yfir rekstur sjóðs sveitarfélagsins á árinu 2012.

  2. 2. 740 - Deiliskipulag Neseyri

    Mál 0904014 Allur ferill málsins

    Lögð fram umferðaröryggisúttekt á Nesgötu í Neskaupstað vegna fyrirhugaðs leikskóla dagsett 3. apríl 2013. Úttektin var unnin af verkfræðistofunni Mannvit. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísaði úttektinni til umræðu í bæjarráði og óskar jafnframt eftir umsögn bæjarráðs og fræðslu- og frístundanefndar.

    Bæjarráð felur eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd að útfæra fleiri tillögur að deiliskipulögum og jafnframt að ræða við hlutaðeigandi aðila tengdum uppbyggingu nýs leikskóla.

    Bókun frá Elvari Jónssyni vegna deiliskipulags á Neseyri.

    Undirritaður ítrekar þá afstöðu sína sem áður hefur verið bókuð, m.a. á bæjaráðsfundi nr. 314, að Nesgata færist suður fyrir fyrirhugaðan leikskóla áður en nýtt leikskólahúsnæði verður tekið í notkun. Úttektin breytir ekki þeirri afstöðu.

  3. 3. Aðalfundarboð Sparisjóðs Norðfjarðar 18.apríl 2013

    Mál 1304029 Allur ferill málsins

    Boðað er til aðalfundar Sparisjóðs Norðafjarðar 18. apríl nk.

    Bæjarráð samþykkir að Valdimar O. Hermannsson fari með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  4. 4. Árdalur 19, varnir vegna ágangs vatns

    Mál 1304065 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Opus lögmönnum vegna lóðarinnar Árdals 19 á Eskifirði.

    Bæjarritara falið að svara erindi lögfræðistofunnar.

  5. 5. Beiðni um fimmta starfsdaginn í leikskólum Fjarðabyggðar

    Mál 1304019 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað fræðslustjóra um fjölgun á starfsdögum í leikskólum Fjarðabyggðar úr fjórum í fimm en minnisblað er tilkomið vegna endurskoðunar á skólanámskrám leikskóla og óskað er eftir að bætt verði við einum starfsdegi næstu tvö skólaár.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara yfir starfsdaga leikskóla með fræðslustjóra og leggja minnisblað fyrir bæjarráð.

  6. 6. Framtíð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands

    Mál 1110202 Allur ferill málsins

    Málefni Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands rædd og framtíð starfsemi sjóðsins.

    Bæjarráð óskar eftir endanlegum drögum að nýjum samþykktum sjóðsins frá stjórn Austurbrúar.

    Bæjarráð samþykkir að framlög til sjóðsins vegna ársins 2013 verði greidd. Tekið af liðnum óráðstafað 21 - 69 alls kr. 3.805.038.

  7. 7. Íbúðir fyrir 60 ára og eldri - Hafnarbraut 2 740

    Mál 1304006 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf til bæjarstjóra um nýtingu húsnæðisins að Hafnarbraut 2 í Neskaupstað fyrir íbúa 60 ára og eldri frá Lilju Dögg Vilbergsdóttur, Önnu Þóru Árnadóttur og Jónu Lind Sævarsdóttur.

    Bæjarstjóra falið að skoða málið og einnig málefni Hulduhlíðar þessu tengt.

  8. 8. Kaup á myndefni úr Fjarðabyggð

    Mál 1304075 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Þórarins Árna Hafdals Hávarðssonar þar sem hann býður til sölu kaup á myndefni úr Fjarðabyggð.

    Vísað til markaðs- og upplýsingafulltrúa til skoðunar og umfjöllunar í atvinnu- og menningarnefnd.

  9. 9. Opið bréf til forráðamanna Fjarðabyggðar

    Mál 1304063 Allur ferill málsins

    Framlagt opið bréf Sigurjóns Hjálmarssonar sem fjallar m.a. um álagningu fasteignaskatta í Fjarðabyggð og fjárhagsaðstoð.

    Vísað til bæjarstjóra og umræðu í félagsmálanefnd.

  10. 10. Sameining lífeyirssjóða sveitarfélaga

    Mál 1204044 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sátu Jón G Kristjánsson framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs sveitarfélaga þar sem farið var yfir gögn er varða sameiningu Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar og fimm annara lífeyrissjóða við Lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga.

    Kynntar niðurstöður sameiningarnefndar sem leggur til við stjórn sjóðsins að þeir verði sameinaðir. Stjórn Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar fundar síðar í dag að aflokinni kynningu með Starfsmannafélagi Fjarðabyggðar þar sem afstaða verður endanlega tekin til sameiningar.

    Bæjarráð samþykkir sameininguna fyrir sitt leyti.

  11. 11. Alþingiskosningar 2013

    Mál 1303001 Allur ferill málsins

    Kjörskrárstofn fyrir Fjarðabyggð vegna Alþingiskosninga 27. apríl nk. lagður fram til kynningar.

    Bæjarstjóra falið að vinna kjörskrárstofn og leggja fyrir bæjarstjórnarfund, sem haldinn verður 17. apríl nk., til staðfestingar.

  12. 12. Fræðslu- og frístundanefnd - 38

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar frá 10. apríl sl. lögð fram til kynningar.

  13. 13. Atvinnu- og menningarnefnd - 44

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar frá 13. apríl sl. lögð fram til kynningar.

  14. 14. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 60

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 8. apríl sl. lögð fram til kynningar.

  15. 15. Hafnarstjórn - 114

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 9. apríl sl. lögð fram til kynningar.

  16. 16. Fundargerðir félagsmálanefndar 2013

    Mál 1301074 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 9. apríl lögð fram til kynningar.