Beiðni um fimmta starfsdaginn í leikskólum Fjarðabyggðar
Mál 1304019 Fyrst á dagskrá 15. apríl 2013, síðast 2. maí 2013. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2013
Bæjarráð, fundur 335 liður 5
Framlagt minnisblað fræðslustjóra um fjölgun á starfsdögum í leikskólum Fjarðabyggðar úr fjórum í fimm en minnisblað er tilkomið vegna endurskoðunar á skólanámskrám leikskóla og óskað er eftir að bætt verði við einum starfsdegi næstu tvö skólaár.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara yfir starfsdaga leikskóla með fræðslustjóra og leggja minnisblað fyrir bæjarráð.
-
Bæjarstjórn, fundur 133 liður 3.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 335“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 337 liður 1
Fram lagt minnisblað fræðslustjóra og bæjarstjóra vegna fimmta starfsdags í leikskólum Fjarðabyggðar. Var áður tekið fyrir á fundi bæjarráðs 335.
Bæjarráð samþykkir beiðni um fimmta starfsdaginn fyrir árið 2013 en vísar beiðni um fimmta starfsdaginn á árinu 2014 til fjárhagsáætlunargerðar 2014. Ástæðan fyrir fjölgun daga á árinu 2013 er vegna endurgerðar skólanámskrár og með vísan til fjölskyldustefnu Fjarðabyggðar.
Þá er fræðslustjóra falið að leita leiða með skólastjórum með að færa hluta af starfsmannafundum inn í starfsdaga leikskólanna. Þá verði foreldraráðin upplýst um skipulag starfsdaga.
-
Bæjarstjórn, fundur 134 liður 2.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 337“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.