Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 337

29. apríl 2013, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 134 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 29. apríl 2013 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Beiðni um fimmta starfsdaginn í leikskólum Fjarðabyggðar

    Mál 1304019 Allur ferill málsins

    Fram lagt minnisblað fræðslustjóra og bæjarstjóra vegna fimmta starfsdags í leikskólum Fjarðabyggðar. Var áður tekið fyrir á fundi bæjarráðs 335.

    Bæjarráð samþykkir beiðni um fimmta starfsdaginn fyrir árið 2013 en vísar beiðni um fimmta starfsdaginn á árinu 2014 til fjárhagsáætlunargerðar 2014. Ástæðan fyrir fjölgun daga á árinu 2013 er vegna endurgerðar skólanámskrár og með vísan til fjölskyldustefnu Fjarðabyggðar.

    Þá er fræðslustjóra falið að leita leiða með skólastjórum með að færa hluta af starfsmannafundum inn í starfsdaga leikskólanna. Þá verði foreldraráðin upplýst um skipulag starfsdaga.

  2. 2. Gamli barnaskólinn á Eskifirði - standsetning

    Mál 1210122 Allur ferill málsins

    Lið er vísað til bæjarráðs frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd en nefndin samþykkir lið fyrir sitt leyti.

    Framlagt afsal með kvöðum ásamt kostnaðar- og framkvæmdaáætlun um endurgerð Gamla skólans á Eskifirði. World friends höfðu óskað eftir að fá Gamla skólann til eignar og umráða.

    Bæjarstjóra falið að ganga frá afsali með kvöðum um endurgerð Gamla skólans í samræmi við gildandi reglur Fjarðabyggðar um styrki í tengslum við atvinnuuppbyggingu vegna endurgerðar gamalla húsa og fasteigna í eigu Fjarðabyggðar. Bæjarráð vill ítreka að ytra útlit hússins sé í samræmi við upprunalegt horf og leitað sé umsagnar Minjastofnunar Íslands um endurgerðina.

  3. 3. Gjaldskrármál

    Mál 1304027 Allur ferill málsins

    Breytingar á gjaldskrá hafnarsjóðs lögð fram til kynningar.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána fyrir sitt leyti.

  4. 4. Stjórnarfundir Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 2013

    Mál 1303106 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar 50. fundargerð stjórnar Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar frá 20. mars s.l.

  5. 5. Stjórnarfundir StarfA 2013

    Mál 1302097 Allur ferill málsins

    Framlagðar til kynningar tvær fundargerðir stjórnar Starfa frá 15.febrúar og 22. apríl.

  6. 6. Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs 16.maí

    Mál 1304101 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar fundarboð aðalfundar Lífeyrissjóðsins Stapa 16. maí n.k.

  7. 7. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2013

    Mál 1301075 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 34 frá 17. apríl lögð fram til kynningar.

  8. 8. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 61

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 61. frá 22. apríl lögð fram til kynningar.