Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 338

6. maí 2013, kl. 14:30 til 15:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 135 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Jens Garðar Helgason, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Guðmundur Þorgrímsson, Elvar Jónsson, Valdimar O Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 6. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Aðstaða við íþróttavöllinn í Neskaupstað

    Mál 1304032 Allur ferill málsins

    Var til umfjöllunar á fundi bæjarstjórnar nr. 134. Vísað til frekari umfjöllunar bæjarráðs.

    Fjallar um aðstöðumál Íþróttafélagsins Þróttar en félagið hefur óskað eftir því að komið verði upp vatns- og salernisaðstöðu við Norðfjarðavöll.

    Bæjarráð felur mannvirkjastjóra að skoða málið með lausnir í huga bæði varðandi salernisaðstöðu og drykkjarvatn.

  2. 2. Fyrirspurn um hugsanlega leigu eða kaup á hluta af eyðibýlinu Hvalnesi

    Mál 1305008 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Arnar Ingólfssonar þar sem lögð er fram ósk um að leigja eða kaupa hluta af eyðibýlinu Hvalnesi í Stöðvarfirði.

    Óskað er eftir umsögn eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  3. 3. Skoðun aðalskipulagsmála vegna hafnar og iðnaðarsvæða

    Mál 1304098 Allur ferill málsins

    Á fundi hafnarstjórnar þann 5. mars sl. var því beint til bæjarráðs að láta hefja skoðun á aðalskipulagi Fjarðabyggðar vegna hafnsækinnar starfsemi. Bæjarstjóri, mnannvirkjastjóri og framkvæmdastjóri hafna hafa fundað með Alta ehf. og fengið tillögur að vinnufyrirkomulagi við endurskoðun á aðalskipulagi vegna hafnsækinnar starfsemi.

    Bæjarráð vísar málinu til umsagnar hafnarstjórnar.

    Farið yfir skipulag sameiginlegrar markaðs- og kynningarferðar Fljótsdalshéraðs og Fjarðabyggðar til Aberdeen og Stavanger.

  4. 4. Úthlutun íþróttastyrkja 2013

    Mál 1303033 Allur ferill málsins

    Málin rædd.

    Bæjarstjóra falið að vinna að málinu og leggja tillögur fyrir næsta fund bæjarráðs.

  5. 5. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2013

    Mál 1301338 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar 805. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

  6. 6. Fundargerðir stjórnar SSA - 2013

    Mál 1301160 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar 6. fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

  7. 7. Fræðslu- og frístundanefnd - 39

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar frá 29. apríl lögð fram til kynningar.

  8. 8. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 62

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 29. apríl lögð fram til kynningar.