Bæjarráð, fundur 336
26. apríl 2013, kl. 15:15 til 15:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 134 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Jens Garðar Helgason.
Fundargerð bæjarráðs frá 26. apríl 2013 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Alþingiskosningar 2013, kjörskrárstofn
Mál 1303001 Allur ferill málsins
Bæjarstjórn fól bæjarráði að afgreiða til fullnaðar og úrskurða um breytingar á kjörskrá og ráða til lykta öðrum málum, sem kunna að heyra undir verksvið bæjarstjórnar í tengslum við kosningar til Alþingis 27. apríl 2013.
Fram lagðir endurskoðaðir kjörskrárstofnar vegna Alþingiskosninga 27. apríl 2013 fyrir Fjarðabyggð.
Upphaflegur kjörskrárstofn taldi alls 3.210 kjósendur; 1.715 karlar og 1.495 konur.
Að teknu tilliti til breytinga eru kjósendur á kjörskrá í Fjarðabyggð alls 3.208; 1.714 karlar og 1.494 konur.
Bæjarráð staðfestir leiðréttan kjörskrárstofn og felur bæjarstjóra undirritun hans.