Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 334

8. apríl 2013, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 133 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 8. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Úthlutun íþróttastyrkja 2013

    Mál 1303033 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat fræðslustjóri. Í símasambandi við fund var jafnframt Elvar Jónsson.

    Bæjarráð frestar umfjöllun til næsta fundur bæjarráðs.

  2. 2. Aðalfundarboð Sparisjóðs Norðfjarðar 18.apríl 2013

    Mál 1304029 Allur ferill málsins

    Framlagt aðalfundarboð Sparisjóðs Norðfjarðar fimmtudaginn 18. apríl 2013 kl. 17:00

    Bæjarráð tilnefnir fulltrúa Fjarðabyggðar á næsta fundi.

  3. 3. Aðalfundur Loðnuvinnslunar hf 19.apríl 2013

    Mál 1304022 Allur ferill málsins

    Framlagt aðalfundarboð Loðnuvinnslunnar hf. 19. apríl 2013 kl. 18:30

    Bæjarráð samþykkir að fela Páli Björgvini Guðmundssyni bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.

  4. 4. Ársskýrsla HAUST 2012

    Mál 1304008 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Austurlands fyrir árið 2012.

  5. 5. Fundagerðir stjórnarfunda og ársreikningur 2012 - Samband orkusveitarfélaga

    Mál 1301331 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar 10. fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 22. mars sl.

  6. 6. Breytingar á nefndarskipan sjálfstæðisflokks á kjörtímabilinu 2010-2014

    Mál 1204061 Allur ferill málsins

    Tilkynning um breytingu á skipan Sjálfstæðisflokksins í atvinnu- og menningarnefnd.

    Óðinn Magnason tekur sæti Þórðar Vilbergs Guðmundssonar sem aðalmaður Sjálfstæðisflokksins. Varamaður Sjálfstæðisflokksins verður skipaður á næsta fundi bæjarráðs.

  7. 7. Framkvæmdir við reiðhöllina

    Mál 1304033 Allur ferill málsins

    Jón Björn Hákonarson vék af fundi bæjarráðs við umfjöllun þessa liðar kl. 10:45 og Guðmundur Þorgrímsson mætti á fundinn.

    Þennan dagskrárlið fundar sat Guðröður Hákonarson rekstrarstjóri Dalahallarinnar. Farið yfir fyrirhugaðar framkvæmdir við félagsaðstöðu hestamanna í Dalahöllinni.