Hafnarstjórn, fundur 115
7. maí 2013, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Guðmundur Þorgrímsson, formaður
- Sævar Guðjónsson, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Gísli Benediktsson, aðalmaður
- Árni Þórhallur Helgason, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 339 liður 21
Fundargerð hafnarstjórnar frá 7. maí sl. lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 135 liður 3
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 7. maí staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2013
Mál 1301250 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnarsambands Íslands nr. 356 dags. 8. apríl 2013. Til kynningar.
-
2. Skoðun aðalskipulagsmála vegna hafnar og iðnaðarsvæða
Mál 1304098 Allur ferill málsins
Þann 5. mars 2013 beindi hafnarstjórn því til bæjarráðs að hefja skoðun á aðalskipulagi Fjarðabyggðar vegna hafnsækinnar starfsemi. Nú liggur fyrir tillaga frá Alta í tengslum við skoðun á aðalskipulagsmálum vegna hafnar- og iðnaðarsvæða sem tekin var fyrir í bæjarráði 6. maí og var tillögunni vísað til umsagnar í hafnarstjórn. Hafnarstjórn samþykkir tillöguna og greiðslu kostnaðar við skoðunina m.v. fyrirliggjandi gögn frá Alta og vísar málinu til úrvinnslu bæjararáðs, en beinir því jafnframt til ráðsins að skoðað verði líka hugsanlegir möguleikar að framtíðarlandi fyrir umskipunarhöfn.
Unnið er að undirbúningi skoðunarferðar vegna þjónustu við olíuleit og vinnslu.
-
3. Þekja frystihúsbryggju Eskifirði
Mál 1203080 Allur ferill málsins
Fyrir fundinum lá minnisblað vegna viðgerðar á þekju framan við frystihúsið á Eskifirði. Framkvæmdastjóri fór yfir málið. Hafnarstjórn samþykkti að bæta við verkið skv minnisblaði og jafnframt verði þekjan lagfærð austur fyrir athafnasvæðið við frystigeymsluna.
Beiðni hefur borist frá Eskju um að leggja ídráttarrör undir þekjun sem nú er verið að endurnýja með það fyrir augum að koma sér upp eigin tengli fyrir landtengingu skipa sinna við kantinn. Hafnarstjórn samþykkir beiðnina.
-
4. Smábátahöfn Fáskrúðsfirði - Umhverfisfrágangur
Mál 1211018 Allur ferill málsins
Nýjustu drög teikninga fyrir umhverfisfrágang við smábátahöfnina á Fáskrúðsfirði kynnt. Formaður vék af fundi undir þessum dagskrárlið. Hafnarstjórn samþykkir að verkið verði sett í verðkönnun.
-
5. Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta
Mál 1301313 Allur ferill málsins
Kynntar teikningar af löndunarbryggju smábáta á Norðfirði. Hafnarstjórn samþykkti að verkið verði sett í verðkönnun.
-
6. Hafnarmál á Norðfirði
Mál 1111028 Allur ferill málsins
Fundargerð dags. 2. maí 2013 frá opnun tilboða í "Norðfjörður - stækkun fiskihafnar", fjögur tilboð bárust í verkið.
Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
-
7. Ósk um að fá aðstöðu fyrir skip félagsins á Eskifirði
Mál 1304108 Allur ferill málsins
Erindi dags. 20. apríl 2013 með ósk frá Eimskipum um að fá aðstöðu fyrir skip félagsins, Goðafoss og Dettifoss á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkir erindið en óskum eftir svæðisstjóra Eimskipa til fundar við formann hafnarstjórnar og framkvæmdastjóra hafnarinnar.
-
8. Umsókn um aðstöðu fyrir gáma á bryggjukanti á Búðareyri
Mál 1304073 Allur ferill málsins
Umsókn frá Samskipum dags. 12. apríl 2013 um svæði innan hafnarsvæðir á Reyðarfirði vegna strand- og millilandaflutninga sinna. Hafnarstjórn samþykkir erindið en óskum eftir svæðisstjóra Samskipa til fundar við formann hafnarstjórnar og framkvæmdastjóra hafnarinnar.
-
9. Umsögn um aðalskipulagsbreytingu á Stöðvarfirði
Mál 1305013 Allur ferill málsins
Með tölvupósti dags. 25. apríl 2013 var vísað til umdagnar hjá hafnarstjórn Fjarðabyggðar breytingum á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007 - 2027 vegna Stöðvarfjarðar vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Stöðvarfirði. Kynnt.
-
10. Umsögn um tillögu að deiliskipulagi á hafnarsvæðinu á Stöðvarfirði
Mál 1305014 Allur ferill málsins
Með tölvupósti dags. 25. apríl 2013 var vísað til umsagnar hafnarstjórnar Fjarðabyggðar tillögu að deiliskipulagi og greinargerð með því vegna hafnarsvæðis á Stöðvarfirði. Kynnt.