Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 132

17. apríl 2013, kl. 08:30 til 09:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, varamaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varamaður
  • Guðmundur Þorgrímsson, varamaður
  • Sævar Guðjónsson, varamaður
  • Valdimar O Hermannsson, varamaður
  • Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Alþingiskosningar 2013

    Mál 1303001 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórn fylgdi málinu úr hlaði og kynnti málið.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum framlagðan kjörskrárstofn fyrir Fjarðabyggð vegna Alþingiskosninga 27. apríl n.k. Á kjörskrá eru alls 3.210; 1.715 karlar og 1.495 konur. Þá felur bæjarstjórn bæjarráði að afgreiða til fullnaðar og úrskurða um breytingar á kjörskrá og ráða til lykta öðrum málum, sem kunna að heyra undir verksvið bæjarstjórnar í tengslum við kosningarnar.