Bæjarráð, fundur 326
11. febrúar 2013, kl. 10:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 128 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umræðu og afgreiðslu saman utan liðar 2.3 í fundargerð nr. 327 en hann er tekinn til umfjöllunar og afgreiðslu sem sérstakur liður.
Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Elvar Jónsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð bæjarráðs nr. 326 frá 11. febrúar 2013 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Samkomusalur í Verkmenntaskóla Austurlands
Mál 1302048 Allur ferill málsins
Bréf skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands frá 4. febrúar framlagt til kynningar. Fjallar um nauðsyn þess að koma upp samkomusal við skólann.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að vinna að málinu í samstarfi við skólameistara verkmenntaskólans.
-
2. Málefni Slökkviliðs Fjarðabyggðar
Mál 1102004 Allur ferill málsins
Framlagðar til staðfestingar samningsbreyting 1 við samning og yfirlýsing um brunavarnir slökkviliðs Fjarðabyggðar og Alcoa Fjarðaáls.
Bæjarráð samþykkir samningsbreytingu og yfirlýsingu um samningsbundnar greiðslur ársins 2012.
-
3. Tækjamál Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði
Mál 1302011 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra um tækjamál skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði.
Bæjarráð samþykkir tillögu fræðslustjóra og íþrótta- og tómstundafulltrúa enda leiði það ekki til þjónustuskerðingar. Bæjarráð ítrekar að kaup á nýjum troðara er ekki á fjárhagsáætlunum sveitarfélagsins næstu árin.
-
4. Endurskoðun á úthlutunarreglum íþróttastyrkja
Mál 1208066 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið fundar sat fræðslustjóri.
Farið yfir vinnu fræðslu-og frístundanefndar og starfsmanna hennar við úthlutunarreglur íþróttastyrkja.
-
5. Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði
Mál 1104080 Allur ferill málsins
Framlögð drög leigusamnings um nýtt safn í húsakynnum Franska spítalans og samkomulag um ýmsa þætti samstarfs við Minjavernd um verkefnið í heild.
Leigusamningi vísað til umsagnar atvinnu- og menningarnefndar og en málið verður tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
-
6. Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða - 570. mál - (heildarlög)
Mál 1302012 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar frumvarp til laga um breytingu á stjórn fiskveiða.
Bæjarráð felur bæjarstjóra, í samráði við KPMG, að vinna greinargerð um áhrif breytinga laga um stjórn fiskveiða á Fjarðabyggð.
-
7. Frumvarp til sveitarstjórnarlaga (fjöldi sveitarstjórnarfulltrúa og efling íbúalýðræðis), 204. mál - beiðni um umsögn
Mál 1302020 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar frumvarp til sveitarstjórnarlaga um fjölda sveitarstjórnarfulltrúa og eflingu íbúalýðræðis.
-
8. Til umsagnar frumvarp til sveitarstjórnarlaga, 449. mál
Mál 1302019 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum um heimild til rafrænna íbúakosninga og gerð rafrænnar kjörskrár.
-
9. Tillaga til þingsályktunar um breytta framtíðarskipan refaveiða á Íslandi, 84. mál. Beiðni um umsögn
Mál 1302046 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar tillaga til þingsályktunar um breytta framtíðarskipun refaveiða.
Vísað til landbúnaðarnefndar.
-
10. Tillaga til þingsályktunar um millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll, 174. mál. - beiðni um umsögn
Mál 1302021 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar tillaga til þingsályktunar um millilandaflug með minni farþega- og ferjuflugvélum til Hornafjarðar.
-
11. Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð 2013
Mál 1302044 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar minnisblað móttökufulltrúa íbúa um íbúaþróun í Fjarðabyggð.
Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
-
12. Ljósnetið á leiðinni
Mál 1302065 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar bréf frá Símanum um innleiðingu á ljósnetinu í Fjarðabyggð.
Bæjarráð fagnar ákvörðun Símans um ljósnetsvæðingu í sveitarfélaginu.
-
13. Áskorun á Háskóla Íslands - Auka framboð á fjarnámi og bæta þjónustu við fjarnema.
Mál 1302066 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Austurbrúar þar sem stofnunin vekur athygli á að litlu framboði fjarnáms á háskólastigi.
Bæjarráð tekur undir erindi Austurbrúar. Vísað til bæjarstjóra og fræðslustjóra og þeim falið að móta bréf sem lagt verði fyrir bæjarstjórn.