Áskorun á Háskóla Íslands - Auka framboð á fjarnámi og bæta þjónustu við fjarnema.
Mál 1302066 Fyrst á dagskrá 11. febrúar 2013, síðast 20. febrúar 2013. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2013
Bæjarráð, fundur 326 liður 13
Framlagt bréf Austurbrúar þar sem stofnunin vekur athygli á að litlu framboði fjarnáms á háskólastigi.
Bæjarráð tekur undir erindi Austurbrúar. Vísað til bæjarstjóra og fræðslustjóra og þeim falið að móta bréf sem lagt verði fyrir bæjarstjórn.
-
Bæjarstjórn, fundur 128 liður 10
Forseti bæjarstjórnar fylgdi áskorun á Háskóla Íslands um að auka námsframboð og þjónustu við fjarnema úr hlaði.
Til máls tóku: Valdimar O Hermannsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson.
Bæjarstjórn samþykkir áskorun með 8 atkvæðum og felur bæjarstjóra og fræðslustjóra að koma áskorun á framfæri.
-
Bæjarstjórn, fundur 128 liður 1.13
Fundargerðin „Bæjarráð - 326“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.