Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 325

4. febrúar 2013, kl. 10:30 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 127 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 325 frá 4. febrúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjármögnun og lánasamningar

    Mál 1205065 Allur ferill málsins

    Trúnaðarmál.

    Þennan dagskrárlið fundar sat fjármálastjóri og Hilmar Gunnlaugsson lögmaður frá Sókn ehf. í síma.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt Hilmari Gunnlaugssyni að vinna að málinu.

  2. 2. Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 1

    Mál 1302008 Allur ferill málsins

    Fram lagður viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2013 sem fjallar um að hækka fjárfestingaráætlun í vatnsveitu Fjarðabyggðar um 7,7 milljónir kr. og hækki skammtímaskuld vatnsveitu við aðalsjóð.

    Bæjarráð samþykkir viðauka fyrir sitt leyti og vísar til bæjarstjórnar.

  3. 3. Endurskoðun reksturs upplýsingatæknikerfa

    Mál 1301243 Allur ferill málsins

    Fram lagt minnisblað merkt trúnaðarmál um viðræður við Nýherja og drög að samningi.

    Bæjaráð samþykkir samninginn felur bæjarstjóra að undirrita hann.

  4. 4. Málefni Slökkviliðs Fjarðabyggðar

    Mál 1102004 Allur ferill málsins

    Fram lagður til staðfestingar samningur Slökkviliðs Fjarðabyggðar og Alcoa Fjarðaáls.

    Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann.

  5. 5. Snjóflóðavarnir Tröllagili Norðfirði

    Mál 0903071 Allur ferill málsins

    Fram lagt minnisblað Framkvæmdasýslu ríkisins um uppgjör á aukaverkum og vísitölubreytingum.

    Bæjarráð fellst á aðferðarfræðina sem slíka og felur mannvirkjastjóra að leggja samning fyrir bæjarráð þegar hann liggur fyrir.

  6. 6. Tækjamál Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði

    Mál 1302011 Allur ferill málsins

    Fram lagt minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa og fræðslustjóra um kaup og sölu tækja í Skíðamiðstöðinni í Oddskarði.

    Bæjarráð vísar málinu til mannvirkjastjóra til skoðunar.

  7. 7. Viðbragðsáætlun Skíðasvæðisins Oddsskarðs

    Mál 1205144 Allur ferill málsins

    Frestað frá fundi bæjarráðs 28.1.2013. Fram lögð áætlun um viðbrögð vegna ofanflóða á Skíðasvæðinu í Oddsskarði.

    Bæjarráð vísar viðbragðsáætluninni til bæjarstjórnar til staðfestingar.

  8. 8. Reglur um barnaverndarnefndar Fjarðabyggðar framsal til starfsmanna barnaverndarnefndar.

    Mál 1008126 Allur ferill málsins

    Reglur um barnaverndarnefndar Fjarðabyggðar um könnun,meðferð mála og framsal valds til starfsmanna barnaverndarnefndar.

    Frá fundi bæjarráðs 23. nóvember 2012. Máli var vísað til bæjarritara til skoðunar. Fram lagt minnisblað um framsal sveitarstjórnar og barnaverndarnefndar til starfsmanna og tengsl sveitarstjórnarlaga og barnaverndarlaga.

    Reglur lagðar fram til kynningar.

  9. 9. Atvinnuleysi í Fjarðabyggð og á Austurlandi 2012

    Mál 1301281 Allur ferill málsins

    Fram lagt yfirlit frá Vinnumálastofnun um fjölda atvinnuleysisdaga á Austurlandi 2012.

  10. 10. Barnalög (stefnandi barnsfaðernismál), 323. mál

    Mál 1301339 Allur ferill málsins

    Fram lögð drög að þingsályktun um barnalög.

    Vísað til barnaverndarnefndar.

  11. 11. Fundar sjávarútvegssveitarfélaga og ársreikningur

    Mál 1301332 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar fundargerð nr. 4 frá Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga ásamt ársreikningi samtakanna.

  12. 12. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2013

    Mál 1301338 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar 803. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

  13. 13. Stjórnarfundur nr.9 og ársreikningur 2012 - Samband orkusveitarfélaga

    Mál 1301331 Allur ferill málsins

    Fram lögð 9. fundarargerð stjórnar og ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga.

  14. 14. Styrkir vegna námsferða og mannaskipta á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum

    Mál 1301298 Allur ferill málsins

    Fram lagt bréf frá Samband íslenskra sveitarfélaga um styrki vegna námsferða og starfsmannaskipta frá Norrænu ráðherranefndinni.