Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2013

Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 1

Mál 1302008 Fyrst á dagskrá 4. febrúar 2013, síðast 7. febrúar 2013. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2013

    Bæjarráð, fundur 325 liður 2

    Fram lagður viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2013 sem fjallar um að hækka fjárfestingaráætlun í vatnsveitu Fjarðabyggðar um 7,7 milljónir kr. og hækki skammtímaskuld vatnsveitu við aðalsjóð.

    Bæjarráð samþykkir viðauka fyrir sitt leyti og vísar til bæjarstjórnar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 127 liður 9

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2013 úr hlaði.

    Lagt er til að fjárfestingaráætlun ársins 2013 fyrir vatnsveitu hækki um 7,7 milljónir kr. og verði alls 17,7 milljónir kr. og heildarfjárfesting b. hluta verði 642,7 milljónir kr. Ennfremur er lagt til að fjármagna framkvæmdina með eigin fé Vatnsveitu Fjarðabyggðar og mun skammtímaskuld vatnsveitu við aðalsjóð Fjarðabyggðar hækka sem því nemur og handbært fé aðalsjóðs lækkar um sömu fjárhæð.

    Bæjarstjórn samþykkir viðaukann með 9 atkvæðum.

  3. Bæjarstjórn, fundur 127 liður 3.2

    Fundargerðin „Bæjarráð - 325“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is