Bæjarráð, fundur 321
7. janúar 2013, kl. 08:30 til 09:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 126 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman
Fundargerð bæjarráðs frá 7. janúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Aðalfundarboð Sjóminjasafns Austurlands
Mál 1212030 Allur ferill málsins
Framlagður til kynningar ársreikningur og gögn frá aðalfundi Sjóminjasafns Austurlands frá 18. desember.
Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
-
2. Auka aðalfundur Þróunarfélags Austurlands
Mál 1212026 Allur ferill málsins
Fundargerð aukaaðalfundar Þróunarfélags Austurlands frá 20.desember 2012 lögð fram til kynningar.
Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
-
3. Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf
Mál 1104081 Allur ferill málsins
Framlagður ársreikningur og minnisblað til kynningar vegna málefna Eignarhaldsfélagsins fasteignar hf.
-
4. Framtíð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
Mál 1110202 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar bréf frá Austurbrú þar sem kynnt eru viðbrögð sveitarfélaga við aðild að Atvinnuþróunarsjóði Austurlands.
Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
-
5. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2012
Mál 1202007 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
-
6. Fundargerðir samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Mál 1209087 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð 3. fundar sjávarútvegssveitarfélaga.
Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
-
7. Fyrirkomulag á refa- og minkaveiðum
Mál 1208083 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar 1. fundargerð verkefnahóps sveitarfélaga um skipan refa- og minkaveiða.
Vísað til landbúnaðarnefndar og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
8. Prókúra fjármálastjóra
Mál 1212108 Allur ferill málsins
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að bæjarstjóra verði veitt heimild til að veita Snorra Styrkárssyni fjármálastjóra prókúru á bankareikninga sveitarfélagsins og stofnana.
-
9. Tilkynning um breytingu á regluverði
Mál 1208009 Allur ferill málsins
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn Fjarðabyggðar að Björgvin Valdimarsson láti af starfi regluvarðar og við starfi regluvarðar taki Snorri Styrkársson kt. 200258-2829 frá og með samþykkt bæjarstjórnar.
-
10. Sala á fasteign að Fífubarði 11 á Eskifirði
Mál 1203010 Allur ferill málsins
Fyrir liggur kaupboð í Fífubarð 11 á Eskifirði en Fjarðabyggð er einn af eigendum Veturhúsa ehf. sem er eigandi fasteignarinnar.
Bæjarráð samþykki fyrir sitt leyti að selja fasteignina.
-
11. Skýrsla KPMG um áhrif fiskmarkaða á fiskverð
Mál 1211173 Allur ferill málsins
Til kynningar skýrsla KPMG um fiskmarkaði.
Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
-
12. Starfshópur um almenningssamgöngur / Aðalmál
Mál 1101197 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri.
Framlagðar til kynningar breytingar á skipulögðum samgöngum í Fjarðabyggð á nýju ári.
Bæjarráð staðfestir breytingarnar.
-
13. Umsókn um aðstöðu í íþróttahúsi Reyðarfjarðar vegna þorrablóts 2013
Mál 1301007 Allur ferill málsins
Fram lögð beiðni frá Þorrablótsnefnd Fjarðabyggðar um afnot af íþróttahúsinu á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að leigja Þorrablóti Reyðarfjarðar íþróttahúsið með sama hætti og verið hefur.
Vísað til framkvæmdasviðs.
-
14. Yfirlýsing sveitafélaga á Austurlandi um Almenningssamgöngur - 2012
Mál 1301049 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat mannvirkjastjóri.
Framlagður samningur sveitarfélaga á Austurlandi og SSA um framkvæmd almenningssamgangna á Austurlandi ásamt yfirlýsingu þar um.
Lagt fram til kynningar og athugasemda. Mannvirkjastjóra og bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
-
15. Þjónusta við olíuleit á Drekasvæði - kynningarmál
Mál 1210103 Allur ferill málsins
Framlagðar fundargerðir verkefnahóps um Drekasvæðið.
Vísað til kynningar í hafnarstjórn.
-
16. Hafnarstjórn - 108
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 108 frá 19. desember lögð fram til kynningar.