Bæjarráð, fundur 320
17. desember 2012, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 126 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson, Guðmundur Þorgrímsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Óskar Þór Hallgrímsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 17. desember staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjarskiptamál á Stöðvarfirði
Mál 1210180 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf Símans hf. þar sem tilkynnt er að aukinn verði hraði á gagnatengingum við Stöðvarfjörð og veitt full sjónvarpsþjónusta á fyrsta ársfjórðungi nýs árs.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með ákvörun Símans og að þjónusta í þéttbýliskjörnum Fjarðabyggðar sé jöfn.
-
2. Fjármögnun milli sjóða
Mál 1212063 Allur ferill málsins
Fram lagður samningur milli sjóða sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir samninginn.
-
3. Framtíð Starfa
Mál 1212044 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf formanns stjórnar Starfa um stöðu og framtíð Starfsendurhæfingar Austurlands.
Vísað til félagsmálanefndar.
-
4. Gatnagerðagjöld umsögn um frumvarp til laga, 290.mál
Mál 1212040 Allur ferill málsins
Fram lagt til kynningar frumvarp til laga um breytingu á lögum um gatnagerðargjöld um heimild sveitarfélaga til að fresta lagningu bundins slitlags á götur og innheimtu b-gatnagerðargjalda.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
5. Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 2012
Mál 1210207 Allur ferill málsins
Fram lögð til kynningar fundargerð aðalfundar Skólaskrifstofu Austurlands 23. nóvember s.l.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundinum.
Vísað til félagsmálanefndar og fræðslu- og frístundanefndar.
-
6. Stjórnarfundur Skólaskrifstofu Austurlands 2012
Mál 1210184 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Skólaskrifstofu Austurlands 20. nóvember s.l.
Vísað til félagsmálanefndar og fræðslu- og frístundanefndar.
-
7. Fundarboð stofnfjárfundur Sparisjóðs Norðfjarðar
Mál 1211161 Allur ferill málsins
Fram lögð gögn frá fundi stofnfjáreigenda þar sem samþykktar voru breytinar á samþykktum sparisjóðsins til samræmis við breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki.
-
8. Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð 2011 - 2012
Mál 1106064 Allur ferill málsins
Fram lögð til kynningar yfirlit um þróun íbúafjölda í Fjarðabyggð á árinu 2012.
Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
-
9. Reglur um NPA
Mál 1212025 Allur ferill málsins
Félagsmálanefnd samþykkti á fundi sínum þann 3. desember sl. verklagsreglur vegna NPA (notendastýrð persónuleg aðstoð) í málefnum fatlaðs fólks. Nefndin vísaði reglunum til umræðu og afgreiðslu í bæjarráði.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
10. Reglur um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks hjá fjölskyldusviði Fjarðabyggðar
Mál 1210150 Allur ferill málsins
Félagsmálanefnd samþykkti á fundi sínum þann 3. desember sl. reglur um styrki til náms og tækjakaupa fatlaðs fólks. Nefndin vísaði reglunum til umræðu og afgreiðslu í bæjarráði.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
11. Safnahús á Egilsstöðum
Mál 1212033 Allur ferill málsins
Fljótsdalshérað hefur farið þess á leit við þá sem koma að rekstri héraðsskjalasafnsins að skoða með hvað hætti best sé að standa að rekstri húsnæðisins.
Bæjarráð vísar erindi til stjórnsýslu- og þjónustusviðs.
-
12. Samningur við Curron ehf - TicketSystem
Mál 1210114 Allur ferill málsins
Fram lögð drög að samningi við Curron ehf vegna aðgangskerfi í skipulagðar samgöngur í Fjarðabyggð, sundlaugar og líkamsræktarstöðvar ásamt þjónustusamningi við fyrirtækið og samningi við Alcoa Fjarðaál vegna skipulagðra samgangna.
Bæjarráð samþykkir samningana og felur bæjarstjóra að undirrita þá.
-
13. Styrkur til Kórs Fjarðabyggðar
Mál 1212036 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf Kórs Fjarðabyggðar þar sem óskað er eftir 1 milljónar kr. styrk til kórstarfsins á árinu 2013.
Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
-
14. Bréf til bæjarráðs frá Herdísi Þórhallsdóttur - kjaramál.
Mál 1212034 Allur ferill málsins
Fyrirspurn um ákvörun á ráðningu ófaglærðra starfsmanna við þjónustu á Bakkabakka í stað sjúkraliða.
Vísað til bæjarritara.
-
15. Tekjustofn sveitarfélaga(hlutverk jöfnunarsjóðs),291.mál
Mál 1212041 Allur ferill málsins
Fram lagt til kynningar frumvarp til laga um breytingu á tekjustofnum sveitarfélaga - heimild Jöfnunarsjóðs til takmarkana á framlaga til tekjuhárra sveitarfélaga.
-
16. Tillögur um atvinnuátakið VINNA OG VIRKNI
Mál 1211094 Allur ferill málsins
Lagður fram samningur um samstarfsverkefnið Vinna og virkni á milli Velferðarráðuneytisins og Fjarðabyggðar. Fjarðabyggð leggur til 6 störf á tímabilinu 1. janúar til 1.11.2013.
Bæjarráð samþykkir samning og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
17. Viðbragðsáætlun vegna hópslysa í umdæmi Lögreglustjórans á Eskifirði
Mál 1210006 Allur ferill málsins
Fram lögð til kynningar staðfest viðbragðsáætlun vegna hópslysa í umdæmi Lögreglustjórans á Eskifirði.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
18. Fjarðabyggðarhöll
Mál 2008-09-11-1450 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf frá Reitum hf. vegna Fjarðabyggðarhallarinnar.
Málið rætt og mannvirkjastjóra falið að svara bréfi og krefjast úrbóta.
-
19. Reglur leikskóla Fjarðabyggðar
Mál 1211062 Allur ferill málsins
Reglur um leikskóla í Fjarðabyggð lagðar fram til kynningar. Fræðslu- og frístundanefnd samþykkti fyrir sitt leyti og vísaði þeim til endanlegrar afgreiðslu hjá bæjarráði og bæjarstjórn.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar staðfestingu þeirra til bæjarstjórnar.
-
20. Fræðslu- og frístundanefnd - 33
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 33 frá 12. desember lögð fram til kynningar.
-
21. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2012
Mál 1201124 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 31 lögð fram til kynningar.
-
22. Fundargerðir félagsmálanefndar 2012
Mál 1201123 Allur ferill málsins
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 38 frá 3. desember sl. lögð fram til kynningar.