Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 319

10. desember 2012, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 125 liður 1

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson, Esther Ösp Gunnarsdóttir og Elvar Jónsson.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 319 frá 10. desember 2012 samþykkt með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fundarboð stofnfjárfundur Sparisjóðs Norðfjarðar

    Mál 1211161 Allur ferill málsins

    Stofnfjárfundur Sparisjóðs Norðfjarðar verður haldinn miðvikudaginn 12.desember kl. 17:30 í sal Nesskóla

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinn.

  2. 2. Húsaleigubætur(réttur námsmanna)49.mál til umsagnar

    Mál 1211150 Allur ferill málsins

    Framlagt frumvarp til laga um húsaleigubætur þar sem réttindi námsmanna til húsaleigubóta eru rýmkaðar.

  3. 3. Starfsemi ríkisins í Norðausturkjördæmi

    Mál 1211137 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar samantekt úr skýrslu Þórodds Bjarnasonar og Jóns Þorvaldar um starfsemi ríkisins í Norðausturkjördæmi. Formaður bæjarráðs fór yfir málið og kynnti helstu niðurstöður skýrslunnar.

    Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.

  4. 4. Fjármál 2012

    Mál 1211170 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat Jóna Árný Þórðardóttir

    Fram lögð gögn frá fjármálasviði um stöðu og rekstur fyrstu níu mánuði árins 2012.

  5. 5. Umsögn um frumvarp til upplýsingalaga, 215. mál

    Mál 1212003 Allur ferill málsins

    Fram lögð umsögn Sambands Íslenskra sveitarfélaga um frumvarp til upplýsingalaga.

  6. 6. Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 2012

    Mál 1201252 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar fundargerð stjórnar SSA frá 22. nóvember

  7. 7. Framtíð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands

    Mál 1110202 Allur ferill málsins

    Stjórn Atvinnuþróunarsjóðs óskaði á fundi sínum 5. nóvember eftir svörum frá aðildarsveitarfélögum hvort þau ætli að halda aðild sinni áfram að sjóðnum. Umræður um málið.

    Bæjarráð vísar dagskrárlið til afgreiðslu bæjarstjórnarfundar 13. desember n.k.

  8. 8. Auka aðalfundur Þróunarfélags Austurlands

    Mál 1212026 Allur ferill málsins

    Fram lagt fundarboð aukaaðalfundar Þróunarfélags Austurlands sem haldinn verður 20. desember.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum og bæjarritari til vara.

  9. 9. Fjármögnun og lánasamningar - trúnaðarmál

    Mál 1205065 Allur ferill málsins

    Fundarliður er trúnaðarmál

    Þennan dagskrárlið fundar sat Jóna Árný Þórðardóttir og Hilmar Gunnlaugsson frá Sókn var í símasambandi.

    Fram lögð gögn frá Hilmari Gunnlaugssyni frá Sókn vegna erlendra lána sveitarfélagsins. Farið yfir stöðu máls.

  10. 10. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga

    Mál 1212027 Allur ferill málsins

    Fram lagðar til kynningar fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga nr. 1 til 8.

  11. 11. Áhrif á landsbyggðina af breytingum á hlutverki Reykjavíkurflugvellar

    Mál 1202077 Allur ferill málsins

    Fram lögð tillaga að uppgjöri kostnaðar vegna skýrslu um hlutverk Reykjarvíkurflugvallar á milli sveitarfélaga sem stóðu að baki skýrslugerðinni.

    Bæjarráð samþykkir að greiða hlutdeild sína í skýrslunni, 200.000 kr. viðauka sem tekinn er af liðnum óráðstafað 21-69.

  12. 12. Umsókn um lóð - Leirukrók 11a

    Mál 1211172 Allur ferill málsins

    Fram lögð umsókn frá lóð frá Rarik um Leirukrók 11a á Eskifirði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt fyrir sitt leyti að úthluta lóðinni.

    Bæjarráð samþykkir að úthlut lóðinni.

  13. 13. Umsókn um lóð - Miðdalur 1a

    Mál 1211171 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn um lóðina Miðdal 1a frá Rarik. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt fyrir sitt leyti að úthluta lóðinni.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  14. 14. Móttökufulltrúi nýrra íbúa - Endurnýjun á samningi við Rauða krossinn vegna ársins 2013

    Mál 1212029 Allur ferill málsins

    Lagður fram til samþykktar samningur við Rauða kross deildirnar í Fjarðabyggð vegna móttökufulltrúa nýrra íbúa. Einnig lögð fram til kynningar starfslýsing móttökufulltrúa og skýrsla móttökufulltrúa frá því í október 2012.

    Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  15. 15. Aðalfundarboð Sjóminjasafns Austurlands

    Mál 1212030 Allur ferill málsins

    Fram lagt fundarboð aðalfundar Sjóminjasafns Austurlands sem haldinn verður 18. desember n.k.

    Bæjarráð felur Jens Garðari Helgasyni að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinn.

  16. 16. Uppsögn úr stjórn Sjóminjafns Austurlands

    Mál 1211144 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Geirs Hólm þar sem hann segir sig úr stjórn Sjóminjasafns Austurlands frá og með næstu áramótum.

    Bæjarráð samþykkir að Jens Garðar Helgason taki sæti hans í stjórn Sjóminjasafni Austurlands frá og með næstu áramótum.

  17. 17. Þjónusta í minni byggðakjörnum Fjarðabyggðar - Hugmyndir Einars Birgis Kristjánssonar

    Mál 1211146 Allur ferill málsins

    Fram lagðar hugmyndir Einars Birgis Kristjánssonar um þjónustumiðstöðvar í byggðakjörnum Fjarðabyggðar ásamt ályktun frá íbúafundi á Fáskrúðsfirði um sama mál.

    Atvinnu- og menningarnefnd vísar hugmyndum Einars og ályktun íbúafundar til kynningar í bæjarráði.

    Bæjarráð tekur vel í erindi íbúafundar og hugmyndir Einars og felur atvinnu- og menningarnefnd að vinna með málið áfram og skoða leiðir.

  18. 18. Tillögur um atvinnuátakið VINNA OG VIRKNI

    Mál 1211094 Allur ferill málsins

    Fram lögð gögn um vinnuátakið Vinnu og virkni og stöðu viðræðna aðila vinnumarkaðsins um aðgerðir til að bregðast við aðsæðum atvinnulausra á árinu 2013.

    Bæjarráð felur fjölskyldusviðinu umsjón með verkefninu og vísar málinu til umfjöllunar félagsmálanefndar.

  19. 19. Fræðslu- og frístundanefnd - 32

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 32 frá 28. nóvember lögð fram til kynningar.

  20. 20. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 52

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 52 frá 6. desember lögð fram til kynningar.

  21. 21. Hafnarstjórn - 107

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 107 frá 4. desember lögð fram til kynningar.

  22. 22. Atvinnu- og menningarnefnd - 38

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 38 frá 6. desember lögð fram til kynningar.

  23. 23. Fundargerðir félagsmálanefndar 2012

    Mál 1201123 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 37 frá 27. nóvember sl. lögð fram til kynningar