Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 318

23. nóvember 2012, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 124 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson og Eiður Ragnarsson.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 318 frá 26. nóvember 2012 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Endurskoðun á umferðarsamþykkt

    Mál 1009017 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur endurskoðað umferðarsamþykkt og vísað henni til staðfestingar bæjarstjórnar. Breytingar kynntar í bæjarráði.

    Vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  2. 2. Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2012-2014

    Mál 1207043 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar minnisblað framkvæmdasviðs og minnisblað fjölskyldusviðs vegna verkþátta sem snúa að viðkomandi sviðum í áætlun.

  3. 3. Aðalfundur Eignarhaldsfélagsins Fasteignar 2012

    Mál 1209151 Allur ferill málsins

    Framlagt aðalfundarboð Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf. 30.11.2012.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum og til vara verði Jóna Árný Þórðardóttir.

  4. 4. Aðalfundur Skólastjórafélags Austurlands - 14.september

    Mál 1211102 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar bréf frá Skólastjórafélagi Austurlandi þar sem sveitarfélög eru hvött til að skerða ekki fjármagn til símenntunar.

  5. 5. Aðgengi að íþróttavelli Ungmennafélagsins Leiknis

    Mál 1211101 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri.

    Framlagt bréf frá Ungmennafélaginu Leikni þar sem óskað er eftir lagfæringum á bílastæðum við knattspyrnuvöllinn á Fáskrúðsfirði.

    Vísað til afgreiðslu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  6. 6. Barnaverndarnefnd Fjarðabyggðar 2010-2014

    Mál 1008126 Allur ferill málsins

    Reglum barnaverndarnefndar sem samþykktar voru þann 12. nóvember sl. í barnaverndarnefnd, um framsal valds til starfsmanna barnaverndarnefndar, vísað til umræðu og afgreiðslu í bæjarráði.

    Bæjarráð frestar afgreiðslu og vísar málinu til bæjarritara til yfirferðar út frá stjórnsýslulegum sjónarmiðum.

  7. 7. Fundur með stjórnendum Alcoa Fjarðaáls

    Mál 1211140 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sátu Guðmundur Bjarnason og Magnús Þór Ásmundsson frá Alcoa Fjarðaáli og ræddu málefni fyrirtækisins.

  8. 8. Tillögur samráðshóps ríkis og sveitarfélaga um innleiðingu húsnæðisbótakerfis

    Mál 1211138 Allur ferill málsins

    Boðað er til kynningarfundar 29. nóvember n.k. þar sem kynna á tillögur að nýju húsnæðisbótakerfi.

    Framlagt til kynningar.

  9. 9. Niðurfelling vega af vegaskrá

    Mál 1208078 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Vegagerðar þar sem lagðar eru til breytingar á skilgreiningum vega í þéttbýli í Fjarðabyggð. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að bæjarráð hafni breytingum, þar sem ekki liggur fyrir ástandsskoðun á umræddum vegaköflum eða hvaða fjármagn fylgir með yfirfærslu.

    Bæjarráð leggst gegn breytingunum og óskar eftir viðræðum við Vegagerðina um þær. Bæjarstjóra og mannvirkjastjóra falið að ræða þessi mál við Vegagerðina.

  10. 10. Sjúkratryggingar (samningar sjúkratryggingastofnunar),303. mál. Til umsagnar

    Mál 1211111 Allur ferill málsins

    Lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar nr 112/2008 sem felur í sér að ráðherra verði heimilt með reglugerð að útfæra nánar ákvæði laganna er varðar samningsumboð vegna flutnings á málefnum aldraðra til sveitarfélaga.

    Vísað til félagsmálanefndar.

  11. 11. Uppsjávarsmiðja á Austfjörðum

    Mál 1211141 Allur ferill málsins

    Framlögð verkefnadrög ásamt minnisblaði þar sem sótt er um IPA styrk til þróunarverkefnis sem hefur það að markmiði að efla úrvinnslu sjávarafurða og þá aðallega uppsjávarfisks.

    Bæjarráð samþykkir að vera aðili að verkefninu en án beinna fjárskuldbindinga. Umsjón með verkefninu falin framkvæmdasviði. Fjarðabyggð mun beita sér fyrir því að leita samninga við aðila um húsnæði þannig að ekki komi til beins kostnaðar. Bæjarritara falið að fylgja málinu eftir.

  12. 12. Vatnsveita Fjarðabyggðar - vatnsból Norðfirði

    Mál 1103156 Allur ferill málsins

    Jón Björn Hákonarson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.

    Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri.

    Fram lagt bréf Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem Lex lögmannsstofa leggur fram kæru fyrir hönd Guðröðar Hákonarsonar vegna leyfis til nýtingar á grunnvatni í landi Tandrastaða.

    Bæjarráð felur mannvirkjastjóra að yfirfara málið m.t.t. athugasemda og vísar máli til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

  13. 13. Miðstöð innanlandsflugs til umsagnar,120.mál(hlutverk Reykjavíkurflugvallar)

    Mál 1211050 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynnningar umsögn um hlutverk Reykjavíkurflugvallar.

  14. 14. Mjóeyrarhöfn - lestunarskýli við hafnarsvæði

    Mál 1211143 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni frá Eimskip um byggingu á lestunarskýli á hafnarsvæðinu við Mjóeyrarhöfn.

    Vísað til framkvæmdastjóra hafna og mannvirkjastjóra og til umfjöllunar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórnar.

  15. 15. Ráðning fjármálastjóra hjá Fjarðabyggð

    Mál 1211139 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Ásmundar Ásmundssonar um ráðningu í starf fjármálastjóra.

    Bæjarritara falið að svara erindinu.

  16. 16. Fræðslu- og frístundanefnd - 31

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 31 frá 14. nóvember lögð fram til kynningar.

  17. 17. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 51

    Fundargerðin í heild

    Framlögð fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 51 frá 19. nóvember sl.

    1. 17.3 740 - Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027, breyting á þéttbýlisuppdrætti fyrir Norðfjörð vegna stækkunar Norðfjarðahafnar
    2. 17.4 740 - Deiliskipulagið Naust 1
  18. 18. Atvinnu- og menningarnefnd - 37

    Fundargerðin í heild

    Framlögð fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 37 frá 22. nóvember sl.

  19. 19. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2012

    Mál 1201124 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 29. frá 12. nóvember sl. lögð fram til kynningar.