Bæjarstjórn, fundur 125
13. desember 2012, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Guðmundur Þorgrímsson, aðalmaður
- Jens Garðar Helgason, aðalmaður
- Stefán Már Guðmundsson, varamaður
- Óskar Þór Hallgrímsson, varamaður
- Benedikt Jóhannsson, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Dagskrá
-
1. Bæjarráð - 319
Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson, Esther Ösp Gunnarsdóttir og Elvar Jónsson.
Fundargerð bæjarráðs nr. 319 frá 10. desember 2012 samþykkt með 8 atkvæðum.
- 1.1 Fundarboð stofnfjárfundur Sparisjóðs Norðfjarðar1211161
- 1.2 Húsaleigubætur(réttur námsmanna)49.mál til umsagnar1211150
- 1.3 Starfsemi ríkisins í Norðausturkjördæmi1211137
- 1.4 Fjármál 20121211170
- 1.5 Umsögn um frumvarp til upplýsingalaga, 215. mál1212003
- 1.6 Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 20121201252
- 1.7 Framtíð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands1110202
- 1.8 Auka aðalfundur Þróunarfélags Austurlands1212026
- 1.9 Fjármögnun og lánasamningar - trúnaðarmál1205065
- 1.10 Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga1212027
- 1.11 Áhrif á landsbyggðina af breytingum á hlutverki Reykjavíkurflugvellar1202077
- 1.12 Umsókn um lóð - Leirukrók 11a1211172
- 1.13 Umsókn um lóð - Miðdalur 1a1211171
- 1.14 Móttökufulltrúi nýrra íbúa - Endurnýjun á samningi við Rauða krossinn vegna ársins 20131212029
- 1.15 Aðalfundarboð Sjóminjasafns Austurlands1212030
- 1.16 Uppsögn úr stjórn Sjóminjafns Austurlands1211144
- 1.17 Þjónusta í minni byggðakjörnum Fjarðabyggðar - Hugmyndir Einars Birgis Kristjánssonar1211146
- 1.18 Tillögur um atvinnuátakið VINNA OG VIRKNI1211094
- 1.19 Fræðslu- og frístundanefnd - 321211016F
- 1.20 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 521212004F
- 1.21 Hafnarstjórn - 1071211020F
- 1.22 Atvinnu- og menningarnefnd - 381212001F
- 1.23 Fundargerðir félagsmálanefndar 20121201123
-
2. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 52
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Jens Garðar Helgason og Elvar Jónsson.
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 52 frá 6. desember 2012 samþykkt með 8 atkvæðum.
- 2.1 Endurskoðun á umferðarsamþykkt
- 2.2 Áríðandi tilkynning varðandi gildi deiliskipulags sem birt hefur verið í Stjórnartíðindum árin 2011 og 2012
- 2.3 735 - Deiliskipulag Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði
- 2.4 Umsókn um skipulag fyrir Óseyri Stöðvarfirði
- 2.5 Norðfjarðargöng - undirbúningur 2012, aðalmál
- 2.6 730 Búðargata 2 - breyting/stækkun á húsnæði
- 2.7 740 Naustahvammur 19 - klæðning á stálgrind
- 2.8 740 Naustahvammur 67-69 - Lyktareyðingarbúnaður
- 2.9 Aðgengi að íþróttavelli Ungmennafélagsins Leiknis
- 2.10 Ályktun frá aðalfundi Skógræktarfélagi Íslands 2012
- 2.11 Mjóeyrarhöfn - lestunarskýli við hafnarsvæði
- 2.12 Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2012-2014
- 2.13 Hreindýraarður 2012
- 2.14 Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði
- 2.15 Seeds - Sjálfboðaliðar umhverfis landið í sjö ár
- 2.16 Umsókn um lóð - Leirukrók 11a
- 2.17 Umsókn um lóð - Miðdalur 1a
- 2.18 Umsókn um lóð fyrir hesthús við Kirkjubólseyri í Neskaupstað
- 2.19 Uppsjávarsmiðja á Austfjörðum
- 2.20 Vatnsveita Fjarðabyggðar - vatnsból Norðfirði
-
3. Hafnarstjórn - 107
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 107 frá 4. desember 2012 samþykkt með 8 atkvæðum.
- 3.1 Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 20121202146
- 3.2 Ný reglugerð um viðbrögð við bráðamengun hafs og stranda1211165
- 3.3 Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði1201079
- 3.4 Brú yfir Lambeyrará1208086
- 3.5 Fyrirspurn um innheimtu vörugjalda1202114
- 3.6 Ferðaleiðir stiklur og námskeið1211152
- 3.7 Hafnarkerfi í Navision í stað Lóðsins1211167
- 3.8 Franski spítalinn - bryggjuaðstaða1105174
- 3.9 Mjóeyrarhöfn - lestunarskýli við hafnarsvæði1211143
- 3.10 Smábátahöfn Fáskrúðsfirði - Umhverfisfrágangur1211018
-
4. Fræðslu- og frístundanefnd - 32
Til máls tóku Jens Garðar Helgason og Elvar Jónsson.
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 32 frá 28. nóvember 2008 samþykkt með 8 atkvæðum.
-
5. Atvinnu- og menningarnefnd - 38
Til máls tóku Elvar Jónsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Gunnar Jónsson, Guðmundur Þorgrímsson og Jens Garðar Helgason.
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 38 frá 6. desember 2012 samþykkt með 8 atkvæðum.
-
6. Endurskoðun á umferðarsamþykkt
Mál 1009017 Allur ferill málsins
Síðari umræða um umferðarsamþykkt.
Umferðarsamþykkt var tekinn fyrir á 52. fundi eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar. Nefndinni hafa borist ábendingar frá Óskari Hallgrímssyni varabæjarfulltrúa á Fáskrúðsfirði, ásamt ábendingum frá bæjarstjóra, er varða lýsingu við gangbrautir, sérstaklega við leik- og grunnskóla ásamt íþróttamannvirkjum, þar sem börn eru einkum á ferðinni. Nefndin fór yfir athugasemdir og fól mannvirkjastjóra að færa inn þær breytingar sem fjallað var um.
Forseti bæjarstjórnar fylgdi samþykktinni úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum umferðarsamþykkt fyrir Fjarðabyggð með áorðnum breytingum.
-
7. Framtíð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
Mál 1110202 Allur ferill málsins
Stjórn Atvinnuþróunarsjóðs samþykkti á fundi sínum þann 5. nóvember sl. að óska eftir svörum frá aðildarsveitarfélögunum hvort þau ætli að halda áfram aðild sinni að sjóðnum. Ákvörðun um áframhaldandi aðild að Atvinnuþróunarsjóði Austurlands vísað frá 319. fundi bæjarráðis til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði með tillögu sem hann bar upp og var samþykkt með 8 atkvæðum.
Bókun og samþykkt bæjarstjórnar
Bæjarstjórn telur að auka þurfi sveigjanleika í samþykktum Atvinnuþróunarsjóðs Austurland þannig að hann geti tekist á við ný verkefni á svæðinu. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar beinir því til stjórnar sjóðsins að þróa samþykktir sjóðsins að þeim stefnumiðum sem tilgreind eru í greinargerð sem meðfylgjandi er þessari tillögu. Verði ekki sátt um það meðal sveitarfélaganna, sem aðild eiga að sjóðnum, á Fjarðabyggð erfitt með að vera áfram aðili að sjóðnum.
Greinargerð
Sveitarfélagið hefur haft málefni atvinnuþróunarsjóðs til umfjöllunar á síðastliðnum tveimur árum og haft frumkvæði að umræðu um sjóðinn á vettvangi sveitarstjórna á Austurlandi. Með styrkingu sjávarútvegs og uppbyggingu álvers á svæðinu hefur þörf fyrir grunnuppbyggingu atvinnulífs á svæðinu minnkað en önnur verkefni þurfa nú sérstaka athygli, s.s. hvað varðar aukningu í fjölbreytni starfa, þróun leiða til að ná stöðugleika í búsetu á svæðinu o.fl. Slík verkefni þarfnast þróunar- og rannsóknarvinnu í samstarfi m.a. við stærstu fyrirtækin á svæðinu. Því er mikilvægt að endurnýjaðar samþykktir sjóðsins geti heimilað framlög t.d. í tímabundin verkefni. Sem dæmi væri hægt að ráða í verkefnastjórastarf á árinu 2013 til að vinna í fyrrgreindum verkefnum.
-
8. 735 - Deiliskipulag Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði
Mál 1208085 Allur ferill málsins
Eigna,- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti fyrir sitt leyti á fundi 6. desember 2012 tillögu að deiliskipulagi Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamuna á Eskifirði ásamt greinargerð og umhverfisskýrslu. Tillagan, greinargerðin og umhverfisskýrslan er unnin af Landmótun ehf.
Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangnamuna á Eskifirði.