Reglur um NPA
Mál 1212025 Fyrst á dagskrá 17. desember 2012, síðast 17. janúar 2013. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2012
Bæjarráð, fundur 320 liður 9
Félagsmálanefnd samþykkti á fundi sínum þann 3. desember sl. verklagsreglur vegna NPA (notendastýrð persónuleg aðstoð) í málefnum fatlaðs fólks. Nefndin vísaði reglunum til umræðu og afgreiðslu í bæjarráði.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
2013
Bæjarstjórn, fundur 126 liður 27
Verklagsreglum vegna "Notendastýrðar persónulegrar aðstoðar í málefnum fatlaðs fólks" vísað til staðfestingar bæjarstjórnar frá bæjarráði nr. 320.
Bæjarstjóri fylgdi reglunum úr hlaði.
Bæjarstjórn staðfestir verklagsreglurnar með 9 atkvæðum.
-
Bæjarstjórn, fundur 126 liður 1.9
Fundargerðin „Bæjarráð - 320“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.