Bæjarráð, fundur 322
14. janúar 2013, kl. 08:30 til 10:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 126 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 14. janúar staðfestar með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf
Mál 1104081 Allur ferill málsins
Gögn vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar Eignarhaldsfélagsins fasteignar lögð fram, drög að nýjum leigusamningi.
Farið yfir stöðu mála hjá fyrirtækinu.
-
2. Opnunartími sundlauga á Eskifirði og Norðfirði 2013
Mál 1301034 Allur ferill málsins
Fyrir liggur minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa og fræðslustjóra um opnunartíma sundlauganna á Eskifirði og Norðfirði, en við gerð fjárhagsáætlunar og starfsáætlunar í íþrótta- og tómstundamálum fyrir 2013 var ákveðið að rýmka opnunartíma sundlauga á Fáskrúðsfirði, Eskifirði og Norðfirði. Sundlaugin á Fáskrúðsfirði opnaði viku fyrr en ráðgert var eða 7. janúar og sundlaugin á Eskifirði opnar nú á virkum dögum yfir veturinn kl. 13:00 í stað 15:00. Frá og með 1. febrúar opnar sundlaugin á Norðfirði á sunnudögum frá 13-18:00. Í minnisblaðinu kemur fram að breytingin á Eskifirði og Norðfirði hafi ekki í för með sér aukin tilkostnað, þar sem samhliða er gerð breyting á vaktatöflum.
Bæjarráð samþykkir tillögur fræðslu- og frístundanefndar.
-
3. Reglur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks
Mál 1203033 Allur ferill málsins
Framlögð drög að reglum um ferðaþjónustu fatlaðs fólks sem félagsmálanefnd samþykkti á fundi sínum 8. janúar s.l. og vísaði til umræðu og afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð óskar eftir því við félagsmálanefnd að hún endurskoði drögin með tillit til endanlegra leiðbeinandi reglna og athugasemda sem komu fram á fundinum.
-
4. Þjónusta við olíuleit á Drekasvæði - kynningarmál
Mál 1210103 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið fundar sat Björn Ingi Knútsson verkefnastjóri, framkvæmdastjóri hafna og markaðs- og kynningarfulltrúi. Farið yfir kynningar og markaðsmál vegna olíuleitar á Drekasvæðinu.
-
5. Skólavegur 39-41, Fáskrúðsfirði og Kirkjumelur í Norðfirði, kaup á eignarhluta ríkisins.
Mál 1212073 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd um kaup á hluta Ríkissjóðs í skólahúsnæði á Fáskrúðsfirði og Norðfirði. Húsnæðið sem um ræðir eru Skólavegur 39 - 41 sem hýsir félagsstarf aldraðra og Kirkjumelur í Norðfjarðarsveit sem er nýtt fyrir leikskóla í dag. Bæjarráð samþykkir tillögu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
6. Starfsþróun og símenntun 2012
Mál 1202026 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað um starfsþróun og fjárveitingar á árinu 2012. Óskað er eftir framlagi á árinu 2012 af óráðstöfuðum liðum 21-69-.
Bæjarráð samþykkir að veita 1,8 milljón kr. af liðum í 21-69- óráðstafað, 9410 og 9950 á árinu 2012 vegna starfsþróunar.
-
7. Yfirlýsing sveitafélaga á Austurlandi um Almenningssamgöngur - 2012
Mál 1301049 Allur ferill málsins
Framlögð yfirlýsingu um skipulagðar samgöngur á Austurlandi.
Bæjarráð staðfestir yfirlýsingu um skipulagðar samgöngur á Austurlandi.
-
8. Safnahús á Egilsstöðum
Mál 1212033 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar bréf Fljótsdalshéraðs vegna Héraðsskjalsafns Austurlands og Minjasafns Austurlands. Fljótsdalshérað óskar eftir skoðun á sameiginlegum forstöðumanni fyrir bæði söfnin.
Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
-
9. Fundargerðir félagsmálanefndar 2013
Mál 1301074 Allur ferill málsins
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 39 frá 8.1. lögð fram til kynningar.
-
10. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 53
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 53 frá 7. janúar lögð fram til kynningar.
-
11. Fræðslu- og frístundanefnd - 34
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 34 frá 9. janúar lögð fram til kynningar.
-
12. Atvinnu- og menningarnefnd - 39
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 39 frá 10. janúar lögð fram til kynningar.
-
13. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 54
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. frá 14. janúar lögð fram til kynningar.