Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2013

Opnunartími sundlauga á Eskifirði og Norðfirði 2013

Mál 1301034 Fyrst á dagskrá 14. janúar 2013, síðast 17. janúar 2013. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: EskifjörðurNeskaupstaður og NorðfjörðurÍþróttir og tómstundir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2013

    Bæjarráð, fundur 322 liður 2

    Fyrir liggur minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa og fræðslustjóra um opnunartíma sundlauganna á Eskifirði og Norðfirði, en við gerð fjárhagsáætlunar og starfsáætlunar í íþrótta- og tómstundamálum fyrir 2013 var ákveðið að rýmka opnunartíma sundlauga á Fáskrúðsfirði, Eskifirði og Norðfirði. Sundlaugin á Fáskrúðsfirði opnaði viku fyrr en ráðgert var eða 7. janúar og sundlaugin á Eskifirði opnar nú á virkum dögum yfir veturinn kl. 13:00 í stað 15:00. Frá og með 1. febrúar opnar sundlaugin á Norðfirði á sunnudögum frá 13-18:00. Í minnisblaðinu kemur fram að breytingin á Eskifirði og Norðfirði hafi ekki í för með sér aukin tilkostnað, þar sem samhliða er gerð breyting á vaktatöflum.

    Bæjarráð samþykkir tillögur fræðslu- og frístundanefndar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 126 liður 3.2

    Fundargerðin „Bæjarráð - 322“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is