Bæjarráð, fundur 323
21. janúar 2013, kl. 10:30 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 127 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Valdimar O Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs nr. 323 frá 21. janúar staðfest með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Bæjarráð
Mál 1208101 Allur ferill málsins
Fram haldið umræðu um upplýsingatæknimál Fjarðabyggðar. Fram lagt minnisblað merkt trúnaðarmál um stöðu viðræðna.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarritara að vinna að málinu á grundvelli minnisblaðsins.
-
2. Vefur Fjarðabyggð - endurnýjun
Mál 1211078 Allur ferill málsins
Fram lögð gögn vegna endurnýjunar á vef Fjarðabyggðar ásamt minnisblaði bæjarritara.
Bæjarráð felur bæjarritara að ganga frá samningi við Skapalón á grundvelli minnisblaðs og hefja vinnu við endurnýjun á vef Fjarðabyggðar til samræmis við minnisblað og gögn sem fram lögð eru á fundinum.
-
3. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2013
Mál 1301220 Allur ferill málsins
Fram lagðar til kynningar 2 fundargerðir stjórnar Náttúrustofu Austurlands frá 22. ágúst og 4 janúar.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til kynningar.
-
4. Fundargerðir stjórnar SSA - 2013
Mál 1301160 Allur ferill málsins
Fram lögð til kynningar fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga Austurlandi frá 8. janúar.
-
5. Landsþing 2013 - fulltrúar
Mál 1301168 Allur ferill málsins
Tilnefning fulltrúa á landsþing sveitarfélaga 15. mars n.k.
Bæjarráð samþykkir að fulltrúar á landsþing sveitarfélaga verði þeir sömu, bæjarfulltrúarnir Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson og Jens Garðar Helgason. Til vara Valdimar O Hermannsson, Guðmundur Þorgrímsson og Eydís Ásbjörnsdóttir.
-
6. Náttúruvernd(heildarlög)til umsagnar
Mál 1301219 Allur ferill málsins
Til umsagnar frá Alþingi frumvarp til laga um náttúruvernd.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
7. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
Mál 1103025 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf Skipulagsstofnunar ásamt greinargerð vegna 10.000 tonna sjókvíaeldis í Reyðarfirði.
Vísað til vinnslu í hafnarstjórn, eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og til kynningar í atvinnu- og menningarnefnd.
-
8. Fjarðabyggðarhöll
Mál 2008-09-11-1450 Allur ferill málsins
Fram lögð drög að bréfi til Reita ehf um Fjarðabyggðarhöllina á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að erindið verði sent Reitum ehf.