Hafnarstjórn, fundur 105
16. október 2012, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 313 liður 35
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 105 frá 16. október lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 122 liður 3
Til máls tók Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 105 frá 16.10. s.l. samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2012
Mál 1202146 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 350 frá 19. september 2012. Til kynningar.
-
2. Þjónusta við olíuleit á Drekasvæði - kynningarmál
Mál 1210103 Allur ferill málsins
Fram lögð samstarfsyfirlýsing við Fljótsdalshérað um þjónustu við olíuleit á Drekasvæðinu. Hafnarstjórn samþykkir drögin fyrir sitt leiti og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
3. Fjárhagsáætlun 2013 - Hafnarstjórn
Mál 1208061 Allur ferill málsins
Farið yfir drög fjárhagsáætlunar 2013 fyrir hafnarsjóð Fjarðabyggðar, ásamt gjaldskrá og framkvæmdaáætlun ársins 2013 auk langtímaáætlunar. Hafnarstjórn samþykkti áætlunina með óverulegum breytingum og vísar henni til bæjarstjórnar.
-
4. Skipulagslýsing send til umsagnar hafnarstjórnar Fjarðabyggðar
Mál 1210120 Allur ferill málsins
Erindi frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd dags. 16. október 2012 þar sem óskað er eftir umsögn hafnarstjórnar um skipulagslýsingu fyrir stækkun Norðfjarðarhafnar. Hafnarstjórn samþykkir skipulagslýsinguna fyrir sitt leiti.