Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2013

Mengun neysluvatns á Eskifirði

Mál 1211098 Fyrst á dagskrá 19. nóvember 2012, síðast 7. febrúar 2013. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Eskifjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2012

    Bæjarráð, fundur 317 liður 6

    Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri. Rætt um niðurstöður rannsókna á vatnssýnum í neysluvatni á Eskifirði. Bæjarráð óskar eftir greinargerð frá framkvæmdasviði um sýnatökur og verkferla sem unnið er eftir við töku sýna. Jafnframt verði skoðaðir möguleikar þess að setja upp frekari hreinsun vatns eins og geislun. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 124 liður 1.6

    Fundargerðin „Bæjarráð - 317“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. 2013

    Bæjarráð, fundur 324 liður 11

    Lagt fram minnisblað frá mannvirkjasviði sem eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur tekið til umfjöllunar og vísað til afgreiðslu bæjarráðs. Lagt er til að farið verði í framkvæmdir við hreinsun neysluvatns en kostnaður nemur um 7.7 milj. kr.. Framkvæmdin er ekki inn á framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins.

    Bæjaráð samþykkir framkvæmdina sbr. tillögu mannvirkjasviðs og felur mannvirkjastjóra og fjármálastjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2012.

  4. Bæjarstjórn, fundur 127 liður 2.11

    Fundargerðin „Bæjarráð - 324“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is