Bæjarráð, fundur 153
23. júní 2009, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Dagskrá
-
1. Tillaga um reglur um námsstyrki til stofnana Fjarðabyggðar
Mál 0906063 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir framlagða tillögu sína og mannauðsstjóra um reglur um námsstyrki til stofnana. Bæjarráð samþykkir reglur um námsstyrki til stofnana Fjarðabyggðar.
-
2. Andapollurinn Reyðarfirði
Mál 0906059 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur Hallfríðar Bjarnadóttur frá 11.6. Umhverfisstjóri sat þennan lið fundarins og upplýsti bæjarráð um stöðu mála vegna athugasemda sem fram koma í tölvupósti Hallfríðar. Umhverfisstjóra falið að svara erindi á grundvelli framkominna upplýsinga.
-
3. Sorpmál - Samstarf við Fljótsdalshérað
Mál 0905099 Allur ferill málsins
Guðmundur R. Gíslason vakti athygli á vanhæfi sínu og vék af fundi undir þessum lið. Umhverfisstjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir hvað felst í beiðni Fljótsdalshéraðs í bréfi frá 16.6. þar sem ítrekuð er beiðni um afnot Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðar af urðunarstað í Þernunesi fram til áramóta. Umhverfisstjóri mun skila bæjarráði umsögn fyrir næsta fund.
-
4. Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði
Mál 0903017 Allur ferill málsins
Svanbjörg Pálsdóttir og Jóhann Eðvald Benediktsson fulltrúar í þarfagreiningarhópi um nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði sátu þennan lið fundarins en bæjarstýra undirritaði í gær samning vegna frumathugunar um nýtt hjúkrunarheimili.Farið var yfir hvernig fyrirkomulag heimilisins er hugsað á þessu stigi, stærð, tímasetningar verkþátta og næstu skref. Heildarkostnaður er áætlaður um 600 milljónir.
-
5. Hækkun á gjaldskrám Hitaveitu Fjarðabyggðar
Mál 0906080 Allur ferill málsins
Tillaga mannvirkjanefndar og greinargerð til bæjarráðs um hækkun á gjaldskrám Hitaveitu Fjarðabyggðar. Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjanefndar um hækkun á gjaldskrám.
-
6. Hækkun á gjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar
Mál 0906079 Allur ferill málsins
<?xml:namespace prefix = o /> Tillaga mannvirkjanefndar og greinargerð til bæjarráðs um hækkun á sölu- og dreifingargjaldskrám Rafveitu Reyðarfjarðar. Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjanefndar um hækkun á gjaldskrám.
-
7. Uppgjör við fyrrum rekstraraðila Valhallar
Mál 0905120 Allur ferill málsins
Bréf Kristins Þórs Jónassonar fyrrum rekstraraðila Valhallar á Eskifirði frá 19.5. sem tekið var fyrir á síðasta fundi. Bæjarráð felur forstöðumanni stjórnsýslu að ganga frá uppgjöri við Kristinn.
-
8. Endurskoðun hafnarreglugerðar Fjarðabyggðarhafna
Mál 0905078 Allur ferill málsins
&lt;DIV&gt;&lt;DIV&gt;&lt;DIV&gt;&lt;DIV&gt;&lt;DIV&gt;Framlögð endurskoðun hafnarreglugerðar Fjarðabyggðarhafna ásamt&nbsp;minnisblaði framkvæmdastjóra hafnanna frá 5.6.&nbsp; Bæjarráð samþykkir að vísa endurskoðun á hafnarreglugerð Fjarðabyggðarhafna til síðari umræðu í bæjarráði.&lt;/DIV&gt;&lt;/DIV&gt;&lt;/DIV&gt;&lt;/DIV&gt;&lt;/DIV&gt;
-
9. Aðalfundur Fiskiræktar- og veiðfélags Norðfjarðar
Mál 0906075 Allur ferill málsins
Aðalfundur verður haldinn laugardaginn 27.6. kl. 14:00 í Egilsbúð. Smári Geirsson verður fulltrúi Fjarðabyggðar á fundinum.
-
10. Málefni Veiðifélags Dalsár í Fáskrúðsfirði
Mál 0905127 Allur ferill málsins
Fundargerð aðalfundar frá 9.6. lögð fram til kynningar.
-
11. Niðurstöður Hugarflugsfundar um samgöngumál
Mál 0906085 Allur ferill málsins
Minnisblað Mannvits frá 16.6. lagt fram til kynningar.
-
12. Nýtt fasteignamat
Mál 0906086 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar fasteignamat 2010. Fasteignamat íbúðareigna hækkar um 4,8 % og heildarfasteignamat hækkar um 1,8 % í Fjarðabyggð.
-
13. Fundargerð fræðslunefndar nr.19 frá 10.6.
Bæjarráð samþykkir fundargerð.
-
14. Fundargerð menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar nr.25 frá 8.6.
Bæjarráð samþykkir fundargerð.
-
15. Fundargerð öldrunarþjónustunefndar nr.12 frá 15.6.
Bæjarráð samþykkir fundargerð.
-
16. Fundargerð mannvirkjanefndar nr.20 frá 19.6.
Bæjarráð samþykkir fundargerð.