Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 154

7. júlí 2009, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Dagskrá

  1. 1. Þjónustusamningur um Norðfjarðarflugvöll

    Mál 0904038 Allur ferill málsins

    Ársæll Þorsteinsson frá Flugstoðum ohf. sat þennan lið fundarins. Farið var yfir stöðu sjúkraflugs um Norðfjarðarflugvöll. Ársæll lagði fram minnispunkta og í máli Ársæls kom fram að Flugstoðir vinni að lausn málsins, einnig sé að vænta endurbóta á flugvellinum og viðræður standa yfir við starfsmenn um að sinna þjónustu við völlinn.

  2. 2. Bygginga- og lóðaframkvæmdir.

    Mál 0903001 Allur ferill málsins

    Lulu Munk Andersen byggingafulltrúi og Árni Steinar Jóhannsson umhverfisstjóri sátu þennan lið fundarins. Lagt fram minnisblað frá 1.7. yfir lóðamál í Fjarðabyggð þar sem farið er yfir lóðaframboð, lóðaskil, umhirðu lóða o.fl.

  3. 3. Móttaka nýrra íbúa

    Mál 0906028 Allur ferill málsins

    Sigríður Herdís Pálsdóttir móttökufulltrúi nýrra íbúa sat þennan lið fundarins og lagði fram minnisblað frá 3.7. yfir nýja íbúa í Fjarðabyggð frá því í desember 2008.

  4. 4. Gólf íþróttahúss á Eskifirði - lagfæringar

    Mál 0906111 Allur ferill málsins

    Bréf skólastjóra Grunnskóla Eskifjarðar frá 22.6. þar sem farið er fram á fjárheimild til að skipta um gólf íþróttahúss. Bæjarráð vísar erindi til meðferðar hjá mannvirkjasviði.

  5. 5. Beiðni um styrk vegna heimsóknar íþróttafélags frá Færeyjum

    Mál 0906123 Allur ferill málsins

    Bréf Íþróttafélagsins Þróttar þar sem óskað er eftir stuðningi vegna heimsóknar um 60 manns frá íþróttafélagi Sandavogs. Bæjarráð felur forstöðumanni stjórnsýslu að afgreiða erindið í samráði við æskulýðs- og íþróttafulltrúa.

  6. 6. Málefni Félagslundar Reyðarfirði

    Mál 0907014 Allur ferill málsins

    Rætt um málefni Félagslundar. Fram er komin beiðni frá undirbúningsfélagi Oddfellow um viðræður um afnot/leigu af Félagslundi og möguleg kaup á síðari stigum. Einnig er framlagt erindi Hrefnuberja og Jurta frá 5.júlí, þar sem óskað er eftir afnotum af hluta Félagslundar til eins árs.  Erindum vísað til meðferðar bæjarstýru og mannvirkjastjóra.

  7. 7. Afnotasamningur Vélaverkstæði Eyrargötu 7

    Mál 0907025 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar afnotasamningur við Frú Lúlú til loka ágústmánaðar nk., vegna afnota af vélaverkstæði að Eyrargötu 7 í Neskaupstað.

  8. 8. Samstarfsverkefni um þjónustu við fatlaða einstaklinga á Reyðarfirði

    Mál 0906098 Allur ferill málsins

    Bréf Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra Austurlandi frá 20.6. þar sem óskað er eftir samstarfi vegna uppbyggingu dagþjónustu á Reyðarfirði og að Fjarðabyggð útvegi húsnæði vegna starfsemi dagþjónustunnar.  Bæjarráð heimilar dagþjónustu á Reyðarfirði afnot af ónýttu herbergi að Melgerði 13.

  9. 9. Tilboð í endurnýjun hluta stofnlagnar vegna snjóflóðavarnargarðs.

    Mál 0903071 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Framkvæmdasýslu ríkisins frá 30.6. og minnisblað mannvirkjaviðs frá 2.7. er varðar töku tilboðs í endurnýjun hluta stofnlagnar vegna snjóflóðavarnargarðs.  Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjasviðs og Framkvæmdasýslu ríkisins um að tekið verði tilboði lægstbjóðanda RBG vélaleigu/Verktaka ehf.

  10. 10. Staða framkvæmda vegna nýbyggingar leikskóla í Neskaupstað og lóðamála Sólvalla

    Mál 0905139 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað mannvirkjasviðs frá 6.7. vegna stöðu framkvæmda vegna nýbyggingar leikskóla í Neskaupstað og lóðamála Sólvalla.

  11. 11. Sala á fasteignum í eigu Fjarðabyggðar

    Mál 0907009 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað mannvirkjasviðs vegna fyrirspurnar um sölu á íbúðarhúsi í Mjóafirði og beiðni menntamálaráðuneytisins um að skólastjórabústaðir á Fáskrúðsfirði, Eskifirði og í Neskaupstað verði settir í söluferli. Bæjarráð fellst á að skólastjórabústaðir verði settir í söluferli en hafnar tilboði í íbúðarhús í Mjóafirði.

  12. 12. Svar við umsókn um úthlutun byggðakvóta

    Mál 0906121 Allur ferill málsins

    Bréf sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis frá 26.6. þar sem fram kemur að ráðuneytið hafi úthlutað 19 þorskígildistonnum til Fáskrúðsfjarðar og 158 til Stöðvarfjarðar. Tillögur sveitarstjórna vegna sérstakra skilyrða varðandi úthlutun byggðakvóta þurfa að hafa borist ráðuneytinu eigi síðar en 21.7. nk.  Bæjarráð sammála um að gera ekki tillögu að sérreglum vegna úthlutunar.

  13. 13. Sorpmál - Samstarf við Fljótsdalshérað

    Mál 0905099 Allur ferill málsins

    Umhverfisstjóri sat þennan lið fundarins. Framlögð umsögn umhverfisstjóra frá 28.6. vegna beiðni Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðar um urðun á almennu heimilissorpi, allt að 1000 tonn, í Þernunesi fram til næstu áramóta.  Bæjarráð felur umhverfisstjóra að vinna málið áfram í samvinnu við hlutaðeigandi aðila.

  14. 14. Endurskoðun hafnarreglugerðar Fjarðabyggðarhafna - síðari umræða

    Mál 0905078 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir endurskoðun á hafnarreglugerð Fjarðabyggðarhafna.

  15. 15. Fundagerð 84.stjórnarfundar HAUST

    Mál 0906116 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram til kynningar.

  16. 16. Fundagerð 765.fundar Samband íslenskra sveitarfélaga

    Mál 0907012 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram til kynningar.

  17. 17. Fundargerð 3.stjórnarfundar Náttúrustofu Austurlands

    Mál 0906119 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram til kynningar.

  18. 18. Aðalfundur SSA 2009

    Mál 0906103 Allur ferill málsins

    Aðalfundur SSA verður haldinn 25. og 26.september á Seyðisfirði.

  19. 19. Endurskoðun á samstarfi sveitarfélaga í SSA

    Mál 0906052 Allur ferill málsins

    Lagt fram svar við spurningum frá starfshópi SSA.

  20. 20. Málefni Golfklúbbs Eskifjarðar

    Mál 0906033 Allur ferill málsins

    Rætt um málefni Golfklúbbs Eskifjarðar.

  21. 21. Golfklúbbur Norðfjarðar - Framkvæmdir og vélakaup 2006-2008

    Mál 0907015 Allur ferill málsins

    Framlagðar upplýsingar samkvæmt ákvæði í samningi milli GN og Fjarðabyggðar.

  22. 22. Minnispunktar um þróun íbúðamála í Fjarðabyggð

    Mál 0907027 Allur ferill málsins

    Framlagðir minnispunktar starfandi fjármálastjóra frá fundi sem haldinn var með íbúðalánasjóði 29.6.

  23. 23. Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr.31 frá 24.6.

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð samþykkt.

  24. 24. Fundargerð hafnarstjórnar nr.60 frá 30.6.

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð samþykkt.