Bæjarráð, fundur 155
14. júlí 2009, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Dagskrá
-
1. Málefni Björgunarsveitarinnar Ársólar Reyðarfirði
Mál 0907017 Allur ferill málsins
Bréf Björgunarsveitarinnar Ársólar frá 1.7. þar sem farið er fram á fund með bæjarráði vegna styrkja til björgunarsveita. Bæjarstýru falið að leggja fram gögn og tillögu að málsmeðferð styrkbeiðna fyrir næsta fund bæjarráðs. Fundað verði með björgunarsveitinni í framhaldinu.
-
2. Móttaka gesta frá Gravelines á Frönskum dögum 2009
Mál 0907033 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað ferða- og menningarfulltrúa frá 9.7. og drög að dagskrá vegna móttöku erlendra gesta á Frönskum Dögum.
-
3. Athugasemdir vegna b-gatnagerðargjalda
Mál 0907006 Allur ferill málsins
Bréf Magna Kristjánssonar er varðar álagningu b-gatnagerðargjalda. Tekið fyrir á næsta fundi.
-
4. Ályktun frá aðalfundi Fiskræktar- og veiðifélags Norfjarðarár sem haldinn var 27.6.2009
Mál 0907018 Allur ferill málsins
Umhverfisstjóri sat þennan lið fundarins. Bréf Fiskiræktar- og veiðifélags Norðfjarðarár frá 28.6. þar sem mótmælt er efnistöku úr Norðfjarðará. Bæjarráð harmar þau mistök sem orðið hafa vegna efnistöku úr Norðfjarðará og felur umhverfisstjóra að koma afsökunarbeiðni á framfæri við Fiskiræktar- og veiðifélag Norðfjarðarár. Umhverfisstjóra og bæjarstýru jafnframt falið að eiga fund með hlutaðeigandi aðilum.
-
5. Efnistaka úr Norðfjarðará
Mál 0907024 Allur ferill málsins
Umhverfisstjóri sat þennan lið fundarins. Lagt fram til kynningar bréf Vegagerðarinnar frá 2.7. vegna efnistöku úr Norðfjarðará og tillögur til úrbóta.
-
6. Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007 - 2027
Mál 0906102 Allur ferill málsins
Umhverfisstjóri og byggingarfulltrúi sátu þennan lið fundarins. Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007 - 2027 var á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar 13.7. vísað til afgreiðslu bæjarráðs. Umhverfisstjóri fór yfir þær breytingar sem gerðar voru við lokafrágang á aðalskipulaginu.Bæjarráð samþykkir aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007 - 2027 með framkomnum breytingartillögum.
-
7. Geymsla á raflausn í geymsluskemmu
Mál 0907031 Allur ferill málsins
Umhverfisstjóri og byggingarfulltrúi sátu þennan lið fundarins. Bréf Alcoa-Fjarðaáls frá 6.7., þar sem tilkynnt er um geymslu á raflausn, lagt fram til kynningar. Bæjarstýru og umhverfisstjóra falið að funda með Alcoa-Fjarðaáli á næstunni vegna þessa máls.
-
8. Samskipti dreifbýlis og þéttbýlis - Ráðstefna North Atlantic Forum í Bornholm 2009
Mál 0907021 Allur ferill málsins
Kynning á ráðstefnu sem haldin verður í Danmörku í september.
-
9. Starfsemi Þróunarfélags Austurlands
Mál 0907029 Allur ferill málsins
Bréf Þróunarfélags Austurlands frá 1.7. vegna athugasemda við starfsemi Þróunarfélags Austurlands og Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að koma svari á framfæri við málshefjanda.
-
10. Fundargerð Skólaskrifstofu Austurlands
Mál 0907030 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
11. Málefni Golfklúbbs Eskifjarðar
Mál 0906033 Allur ferill málsins
Rætt um málefni Golfklúbbs Eskifjarðar.
-
12. Sveitarstjórnarkosningar 2010
Mál 0907039 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar tilkynning um að sveitarstjórnarkosningar muni fara fram 29.5.2010.
-
13. Fundargerð félagsmálanefndar nr.22 frá 22.6.
Mál 0907041 Allur ferill málsins
Fundargerð samþykkt.
-
14. Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr.32 frá 13.7.
Fundargerð samþykkt.