Bæjarráð, fundur 156
21. júlí 2009, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Dagskrá
-
1. Framkvæmd Eistnaflugs
Mál 0907051 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat Árni Steinar Jóhannsson umhverfisstjóri.Bæjarráð felur bæjarstýru að funda með forsvarsmönnum hátíðarinnar ásamt ferða- og menningarfulltrúa.
-
2. Málefni Björgunarsveitarinnar Ársólar Reyðarfirði
Mál 0907017 Allur ferill málsins
Forsvarsmenn björgunarsveita í Fjarðabyggð verða boðaðir til fundar með bæjarráði.
-
3. Innheimta gatnagerðagjalda - B.M. Vallá
Mál 0905092 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat Árni Steinar Jóhannsson umhverfisstjóri.Bæjarráð felur umhverfissviði og byggingarfulltrúa að ganga frá málum sem snúa að fyrirtækinu.
-
4. Ósk um breytingu á reglum um byggðakvóta fyrir sveitarfélagið
Mál 0907053 Allur ferill málsins
Bæjarstýru falið að fylgja erindinu eftir gagnvart ráðuneytinu.
-
5. Athugasemdir vegna b-gatnagerðargjalda á Melagötu 11
Mál 0907006 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat Árni Steinar Jóhannsson umhverfisstjóri.Bæjarráð felur mannvirkjasviði að afgreiða málið.
-
6. Vinabæjarsamskipti á norðurlöndum
Mál 0907052 Allur ferill málsins
Forseta bæjarstjórnar falið að svara erindinu og taka jákvætt í erindi um vinabæjarmót.
-
7. Samanburðarskýrsla Parx á rekstri sveitarfélga
Mál 0907013 Allur ferill málsins
Fram lögð.