Bæjarráð, fundur 157
4. ágúst 2009, kl. 09:00 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Dagskrá
-
1. Lýðræðislegar leikreglur í sveitarfélögum
Mál 0907058 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar bréf sambandsins frá 16.7. vegna umræðu um lýðræðismál á aðalfundum landshlutasamtaka sveitarfélaga haustið 2009 en einnig er vakin athygli á málþingi sem haldið verður 19.8. en málþinginu er ætlað að vera inngangur og grunnur að umræðum um lýðræðismál í sveitarfélögum.
-
2. Vinabæjarheimsókn frá Færeyjum í ágúst - styrkur vegna mótttöku.
Mál 0907083 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að veita 250.000 kr. styrk vegna móttöku hóps frá vinabæ í Færeyjum.
-
3. Athugasemdir vegna b-gatnagerðargjalda
Mál 0907006 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins og gerði grein fyrir þeim b-gatnagerðargjöldum sem eru ógreidd.
-
4. Snjóflóðavarnir Tröllagili Norðfirði.
Mál 0903071 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Á grundvelli ráðgjafar Framkvæmdasýslu ríkisins samþykkir bæjarráð tilboð Köfunarþjónustunnar ehf. í uppsetningu stoðvirkja vegna ofanflóðavarna í Tröllagili á Norðfirði. Tilboðið hljóðar upp á 334.661.067 kr. sem er 76,53% af kostnaðaráætlun.
-
5. Tilboð í Austurveg 65 - Sólberg - á Reyðarfirði
Mál 0907085 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra vegna tilboða í Austurveg 65 Reyðarfirði. Fyrir liggur verðmat á húsinu frá Domus fasteignasölu dagsett 27.7. Mannvirkjastjóra heimilað að ganga frá sölu á húsinu til hæstbjóðanda með skýrum kvöðum og vísan í nýsamþykkt aðalskipulag en meðal annars stendur húsið á 9.209 m2 lóð sem þarf að breyta í venjulega einbýlishúsa lóð sem væri 700 til 1000 m2 að stærð.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />