Bæjarráð, fundur 152
11. júní 2009, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Dagskrá
-
1. Uppgjör við fyrrum rekstraraðila Valhallar
Mál 0905120 Allur ferill málsins
Bréf Kristins Þórs Jónassonar fyrrum rekstraraðila Valhallar á Eskifirði frá 19.5. Farið yfir forsögu málsins. Tekið fyrir á næsta fundi.
-
2. Upplýsingar um stöðu framkvæmda vegna nýbyggingar leikskóla í Neskaupstað og lóðamál Sólvalla
Mál 0905139 Allur ferill málsins
Bréf stjórnar foreldrafélags Sólvalla frá 19.5. þar sem óskað er eftir upplýsingum varðandi stöðu framkvæmda við nýjan leikskóla í Neskaupstað auk þess sem spurst er fyrir um endurbætur á lóð Sólvalla þar sem framkvæmdir við nýjan leikskóla hafa frestast. Vísað til mannvirkjasviðs með beiðni um umsögn.
-
3. Umsókn um styrk vegna Sjómannadagshátíðar á Eskifirði
Mál 0906005 Allur ferill málsins
Beiðni Jens Garðars Helgasonar, f.h. Sjómannadagsráðs á Eskifirði. Jens vék af fundi við afgreiðslu málsins. Bæjarráð kann aðstandendum sjómannadagshátíðarhalda í Fjarðabyggð bestu þakkir fyrir mikinn myndarbrag við framkvæmd hátíðarhalda og vísar beiðni um styrk til afgreiðslu hafnarstjórnar.
-
4. Þjónustumiðstöð fyrir olíurannsóknir og vinnslu
Mál 0906022 Allur ferill málsins
Lagt fram svar við fyrirspurn frá Olíudreifingu ehf. varðandi þjónustumiðstöð fyrir olíurannsóknir- og vinnslu.
-
5. Starf félagsráðgjafa hjá Félagsþjónustusviði Fjarðabyggðar
Mál 0906004 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar greinargerð starfandi félagsmálastjóra frá 2.6.
-
6. Norðfjarðargöng
Mál 0904093 Allur ferill málsins
Framlögð til kynnningar greinargerð skipulagsfulltrúa frá 28.5. um endurheimt votlendis í landi Hólma.
-
7. Greinagerð frá verkefnastjóra móttöku nýrra íbúa
Mál 0906028 Allur ferill málsins
Greinargerð verkefnastjóra frá 28.5. og minnisblað frá fundi verkefnastjórnar 28.5. lagt fram til kynningar.
-
8. Málefni Golfklúbbs Eskifjarðar
Mál 0906033 Allur ferill málsins
Rætt um málefni Golfklúbbs Eskifjarðar. Vísað til tómstundastjóra með beiðni um upplýsingar frá golfklúbbunum á grundvelli 2.liðar í samningum frá desember 2006.
-
9. Rafrænar kosningar - tilraunaverkefni
Mál 0906015 Allur ferill málsins
Bréf samgönguráðuneytisins frá 28.5. þar sem óskað er eftir viðbrögðum frá þeim sveitarfélögum sem áhuga hafa á að taka þátt í tilraunaverkefni vegna rafrænna kosninga. Bæjarráð sér ekki tilefni til þátttöku.
-
10. Frumvarp til vegalaga
Mál 0906011 Allur ferill málsins
Bréfi Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 27.5. vísað til mannvirkjasviðs
-
11. Reglur um skólaakstur - til umsagnar
Mál 0905140 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar. Vísað til fræðslunefndar.
-
12. Fundarboð Veiðifélags Dalsár í Fáskrúðsfirði 4.júní
Mál 0905127 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar.
-
13. Fundagerð 764.fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Mál 0905157 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
14. Vinna við eflingu sveitarstjórnarstigsins
Mál 0905153 Allur ferill málsins
Lagður fram til kynningar tölvupóstur og frétt samgönguráðuneytisins frá 8.5.
-
15. Áherslur sambandsins á samráðsfundum með ráðherrum
Mál 0906032 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar minnisblað frá 4.6.
-
16. Minnisblað frá fundi starfshóps aðila vinnumarkaðarins um efnahags- og atvinnumál
Mál 0906034 Allur ferill málsins
Framlagðir til kynningar minnispunktar frá fundi 4.6.
-
17. Breyting á reglum Starfsmenntunarsjóðs STAF
Mál 0906046 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir breytingar á reglum Starfsmenntunarsjóðs Starfsmannafélags Fjarðabyggðar.
-
18. Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr.30 frá 29.5.
Fundargerð lögð fram.
-
19. Fundargerð hafnarstjórnar nr.59 frá 3.6.
Fundargerð lögð fram.
-
20. Minnisblað frá fundi starfshóps aðila vinnumarkaðarins um efnahags- og atvinnumál
Mál 0906034 Allur ferill málsins
Minnisblað dagsett 6.6. lagt fram til kynningar.
-
21. Endurskoðun á samstarfi sveitarfélaga í SSA
Mál 0906052 Allur ferill málsins
Spurningar frá SSA sem óskað er eftir að verði svarað fyrir mánaðarmót. Tekið fyrir á næsta fundi.
-
22. Vélsmiðjan á Eyrinni
Mál 0906058 Allur ferill málsins
Erindi Frú Lúlú frá 10.6. þar sem óskað er eftir afnotum af Vélsmiðjunni á Eyrinni í Neskaupstað í tengslum við Eistnaflug. Bjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar afgreiðslu þess til mannvirkjasviðs.
-
23. Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027
Mál 0906051 Allur ferill málsins
Bréf Skipulagstofnunar frá 5.6. þar sem fram koma athugasemdir sem bregðast þarf við áður en skipulagið verður afgreitt af Skipulagsstofnun til staðfestingar umhverfisráðherra.
-
24. Andapollurinn Reyðarfirði
Mál 0906059 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi Hallfríðar Bjarnadóttur frá 10.6. Umhverfistjóri boðaður á næsta fund til að ræða umhverfi Andapollsins.