Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 147

5. maí 2009, kl. 08:30 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 58 liður 4

    Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.    Ályktun vegna þjónustu heilsugæslunnar í Fjarðabyggð<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Traust og góð heilsugæsla er meðal þeirra grundvallarlífsgæða sem sóst er eftir í hverju samfélagi.  Fátt skiptir heimilin jafnmiklu máli og góð og persónuleg þjónusta heimilislæknis.  Bæjarstjórn Fjarðabyggðar lýsir áhyggjum af þeirri stöðu sem við er að glíma í heilsugæslu innan sveitarfélagsins og því óefni sem við blasir á Eskifirði.Skorað er á heilbrigðisráðherra að beita sér fyrir lausn í máli yfirlæknis heilsugæslunnar í Fjarðabyggð.  Íbúar í Fjarðabyggð gera tilkall til að búa við öryggi í heilsugæsluþjónustu.Samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Þjónustusamningur um Norðfjarðarflugvöll

    Mál 0904038 Allur ferill málsins

    Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Fundað verður með fulltrúum Flugstoða í vikunni vegna samnings um völlinn.

  2. 2. Snjóflóðavarnir í Neskaupstað

    Mál 0904074 Allur ferill málsins

    Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Framlagt bréf Ara Daníels Árnasonar frá 24.4. er varðar snjóflóðavarnir í Neskaupstað. Vísað til mannvirkjastjóra til afgreiðslu.

  3. 3. Snjóflóðavarnir í Neskaupstað

    Mál 0903071 Allur ferill málsins

    Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Í framlagðri umsögn Framkvæmdasýslu ríkisins frá 20.4. um áætlunargerð vegna uppsetningar stoðvirkja og endurnýjun hluta stofnæðar vatnsveitu kemur fram að framkvæmdasýslan telur að uppsetning stoðvirkja sé nokkurn veginn tilbúin til útboðs en endurnýjun stofnæðar vegna snjóflóðavarnargarða sé tilbúin til útboðs og að fjármögnun hafi verið tryggð. Erindið hefur verið tekið fyrir í mannvirkjanefnd.

  4. 4. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2009

    Mál 0903140 Allur ferill málsins

    Forstöðukona fjármála sat þennan lið fundarins.

  5. 5. Læknisþjónusta í Fjarðabyggð

    Mál 0903114 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu frá Heilbrigðisstofnun Austurlands þau Einar Rafn Haraldsson forstjóri, Stefán Þórarinsson framkvæmdastjóri lækninga, Lilja Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar og Guðríður Þorsteinsdóttir lögfræðingur heilbrigðisráðuneytisins.  Farið var yfir stöðu mála.

  6. 6. Málefni Þróunarfélags Austurlands

    Mál 0904097 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu stjórnarmenn úr Þróunarfélagi Austurlands Lars Gunnarsson, Páll Björgvin Guðmundsson og Svanbjörn Stefánsson auk Auðar Önnu Ingólfsdóttur formanns stjórnar, Stefáns Stefánssonar framkvæmdastjóra og Páls Kr. Pálssonar.Farið var yfir stefnumótunarvinnu sem unnið hefur verið að innan þróunarfélagsins og lögð fram greinargerð Páls yfir stöðu og framtíð þróunarfélagsins. Einnig var lagt fram yfirlit yfir helstu verkefni Þróunarfélags Austurlands 2009.

  7. 7. Erindi Alcoa Fjarðaáls vegna geymslu á raflausn innan þéttbýlis

    Mál 0903134 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar.

  8. 8. Ferjusiglingar til Mjóafjarðar

    Mál 0904028 Allur ferill málsins

    Framlagt yfirlit Fjarðaferða yfir farþegafjölda Mjóafjarðarferju 1.9.2008 - 30.3.2009.

  9. 9. Athugun á starfsmöguleikum á Reyðarfirði

    Mál 0904077 Allur ferill málsins

    Framlögð fyrirspurn frá Scissortail Beverages vegna mögulegrar starfsemi á Reyðarfirði. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að svara erindi.

  10. 10. Aukning á stofnfé Sparisjóðs Norðfjarðar

    Mál 2008-11-21-1815 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf Fjármálaeftirlitsins frá 29.4. þar sem fram kemur að Fjármálaeftirlitið mun bíða með mat á hæfi Fjarðabyggðar til að fara með virkan eignarhlut í Sparisjóði Norðfjarðar þar til niðurstaða fjármálaráðuneytisins liggur fyrir varðandi umsókn Sparisjóðs Norðfjarðar um 20% eiginfjárframlag úr ríkissjóði.

  11. 11. Norðfjarðargöng. Álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum

    Mál 0904093 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar.

  12. 12. Hluthafafundur í Netorku miðvikudaginn 29.apríl

    Mál 0904078 Allur ferill málsins

    Tilkynning um hlutahafafund í Netorku hf. sem haldinn var 29.4. en lagt var til að hlutafé félagsins yrði lækkað og lækkunin notuð til að greiða hluthöfum. Eignarhluti Rafveitu Reyðarfjarðar í Netorku er 0,54% og greiðsla til rafveitunnar nemur því 108.000 kr

  13. 13. Samfélagsáhrif framkvæmda á Austurlandi

    Mál 0904056 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá Háskólanum á Akureyri þar sem vakin er athygli á helstu niðurstöðum úr könnun háskólans á samfélagslegum áhrifum framkvæmda á Austurlandi.

  14. 14. Ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Austurlands

    Mál 0904084 Allur ferill málsins

    Ársskýrsla HAUST 2008 lögð fram til kynningar.

  15. 15. Vinabæjartengsl við Grænland

    Mál 0904076 Allur ferill málsins

    Bréf frá Quqqata dagsett 14.4. þar sem lýst er yfir vilja til áframhaldandi vinabæjarsamskipta. Minnisblað forstöðumanns mannauðsmála frá 5.5. lagt fram.

  16. 16. Fundargerð yfirkjörstjórnar frá 24.apríl 2009

    Mál 0904088 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram.

  17. 17. Fundargerð yfirkjörstjórnar frá 25.apríl 2009

    Mál 0904089 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram.

  18. 18. Fundargerð félagsmálanefndar nr.20 frá 14.apríl 2009

    Mál 0904090 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram.

  19. 19. Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr.29 frá 29.apríl 2009

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.