Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 464

23. febrúar 2016, kl. 15:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, varamaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 196 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 464 og nr. 465 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 23.febrúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Þjónustusamningar við sveitarfélög vegna 2016

    Mál 1602112 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat Jóna Árný Þórðardóttir framkvæmdastjóri Austurbrúar.

    Framlagt bréf Austurbrúar til Fjarðabyggðar um þjónustusamning við Fjarðabyggð vegna fastra framlaga á árinu 2016.

    Bæjarráð samþykkir þjónustusamninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  2. 2. Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði - Hulduhlíð

    Mál 0903017 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Framlögð krafa Framkvæmdasýslu ríkisins um greiðslu umframkostnaðar við byggingu nýs hjúkrunarheimilis á Eskifirði.

    Bæjarráð getur ekki fallist á kröfu Framkvæmdasýslu ríksins og vísar til bókunar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 12. maí 2014 þar að lútandi. Bæjarráð felur fjármálastjóra, í samstarfi við bæjarstjóra, að vinna að málinu áfram.

  3. 3. Fjarðabyggð til framtíðar - Trúnaðarmál

    Mál 1411075 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Farið yfir fasteignalista Eignasjóðs Fjarðabyggðar ásamt öðrum málum sem tengjast verkefninu Fjarðabyggð til framtíðar.

  4. 4. Fjármál 2016

    Mál 1602076 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Framlögð greinargerð félagsmálastjóra um útgjöld vegna dreifingu og framreiðslu matarbakka til eldri borgara.

    Vísað til félagsmálanefndar og félagsmálastjóra til frekari úrvinnslu.

  5. 5. Óveðurstjón í desember 2015

    Mál 1512096 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat sviðsstjóri framkvæmda- umhverfis og veitusviðs.

    Farið yfir stöðu mála vegna óveðurstjóns sem varð í desember 2015 og vinnu Viðlagatryggingar og viðbragðshóps forsætisráðuneytisins. Umræða tekin um grjótvarnir vegna ágangs sjávar á Eskifirði. Skýrsla Viðlagatryggingar vegna tjóna er á lokastigi. Bæjarráð mun fylgja málinu eftir. Vísað til umfjöllunar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn.

  6. 6. Safnaleiðsagnarkerfi

    Mál 1511076 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað um uppsetningu safnaleiðsögukerfis í Stríðsárasafninu á Reyðarfirði, sem fyrsta áfanga í aukinni sjálfbærni miðlunar upplýsinga um söfn í Fjarðabyggð til gesta þeirra.

    Vísað til menningar- og safnanefndar.

  7. 7. Hækkun á gjaldskrá sölu raforku hjá Rafveitu Reyðarfjarðar

    Mál 1602086 Allur ferill málsins

    Tillaga um hækkun á sölugjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar. Hækkunin kemur til af hækkun frá Landsvirkjun upp á tæplega 3 % frá 1.janúar 2016 og verðbólgu og vísitölu hækkunum.

    Til að mæta þessum hækkunum er lagt til að sala raforku hækki um 3,7 % frá 1. mars nk.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt hækkun og vísað til staðfestingar bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir hækkun sölugjaldskrár.

  8. 8. Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. 2016

    Mál 1602126 Allur ferill málsins

    Framlögð auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga en aðalfundur verður haldinn 8. apríl nk.

  9. 9. Fundargerðir stjórnar SSA 2016

    Mál 1601213 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar SSA frá 16.febrúar 2016, lögð fram til kynningar.

  10. 10. Samgöngunefnd SSA - fundargerðir 2016

    Mál 1602102 Allur ferill málsins

    Fundargerð samgöngunefndar SSA frá 11.febrúar 2016, lögð fram til kynningar.

  11. 11. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2016

    Mál 1601200 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar samtaka sjávarútvegsfyrirtækja nr. 26 lögð fram til kynningar.