Hækkun á gjaldskrá sölu raforku hjá Rafveitu Reyðarfjarðar
Mál 1602086 Fyrst á dagskrá 22. febrúar 2016, síðast 3. mars 2016. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: ReyðarfjörðurFjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 138 liður 9
Hækkunin kemur til af hækkun frá Landsvirkjun upp á tæplega 3 % frá fyrsta janúar 2016 og verðbólgu og vísitölu hækkunum.
Til að mæta þessum hækkunum er lagt til að söluskrá, sala raforku hækki um 3,7 % frá fyrsta mars næstkomandi.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillöguna og vísar til Bæjarstjórnar
-
Bæjarráð, fundur 464 liður 7
Tillaga um hækkun á sölugjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar. Hækkunin kemur til af hækkun frá Landsvirkjun upp á tæplega 3 % frá 1.janúar 2016 og verðbólgu og vísitölu hækkunum.
Til að mæta þessum hækkunum er lagt til að sala raforku hækki um 3,7 % frá 1. mars nk.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt hækkun og vísað til staðfestingar bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir hækkun sölugjaldskrár.
-
Bæjarstjórn, fundur 196 liður 1.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 464“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 196 liður 3.9
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 138“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.