Bæjarráð, fundur 465
29. febrúar 2016, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 196 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs nr. 464 og nr. 465 teknar til afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 29. febrúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjármál 2016
Mál 1602076 Allur ferill málsins
Farið yfir orkukostnað sveitarfélagsins og fjármál Hitaveitu Fjarðabyggðar.
Orkukostnaði vísað til skoðunar hjá framkvæmda-, umhverfis- og veitusviði og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
2. Fjarðabyggð til framtíðar - Trúnaðarmál
Mál 1411075 Allur ferill málsins
Framhald umræðu um verkefnið Fjarðabyggðar til framtíðar.
Áframhaldandi umræðu um lista yfir fasteignir Fjarðabyggðar.
Vísað til frekari úrvinnslu hjá bæjarstjóra og fjármálastjóra.
Jafnframt vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
3. Fjölskyldustefna Fjarðabyggðar
Mál 1411001 Allur ferill málsins
Áframhald vinnu frá fundi 23. nóvember. Fræðslunefnd og félagsmálanefnd hafa tekið fjölskyldustefnuna til umfjöllunar á fundum sínum 10. febrúar s.l. sem og íþrótta- og tómstundanefnd 26. febrúar og henni vísað til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Vísað til fjölskyldusviðs til vinna drög að kostnaðargreiningu og forgangsröðunar.
Tekið að því loknu fyrir í bæjarráði og vísað til bæjarstjórnar í framhaldi.
-
4. Ósk um lausn frá nefndarstörfum
Mál 1602119 Allur ferill málsins
Anna Sigríður Karlsdóttir hefur óskað eftir lausn frá setu í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd sem varamaður vegna búferlaflutninga.
Framsóknarflokkurinn skipar Huldu Sigrúnu Guðmundsdóttur sem varamann Önnu Sigríðar Karlsdóttur í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
5. 296.mál til umsagnar frumvarp til laga um sveitarstjórnarlög (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn)
Mál 1602122 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn)
Breytingar eru að þar sem íbúar eru fleiri en 50.000 geti fjöldi verið 15 til 23 í sveitarstjórn.
-
6. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 138
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 22. febrúar lögð fram til kynningar
-
7. Íþrótta- og tómstundanefnd - 19
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 25. febrúar lögð fram til kynningar.